Handbolti

Flest mörk af hægri vængnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hundrað prósent Kári Kristjánsson nýtti öll fimm skotin sín í gær en restin af liðinu skoraði aðeins úr 15 af 46 skotum sínum utan af velli. NordicPhotos/Getty
Hundrað prósent Kári Kristjánsson nýtti öll fimm skotin sín í gær en restin af liðinu skoraði aðeins úr 15 af 46 skotum sínum utan af velli. NordicPhotos/Getty
Einn stórsigur, eitt sigurmark á síðustu stundu og einn stór skellur er uppskeran úr þremur síðustu undirbúningsleikjum strákanna okkar fyrir EM í handbolta sem hefst í Danmörku um næstu helgi.

Sigrarnir í tveimur fyrstu leikjunum á móti Rússlandi og Austurríki þrátt fyrir forföll voru mikið gleðiefni en íslenska liðið var síðan skotið í kaf í lokaleiknum á móti þýsku liði, sem er ekki einu sinni á leiðinni á EM.

„Ég var mjög ánægður með þessa tvo fyrstu sigra þar sem við vorum að spila mjög góðan sóknarleik og hraðaupphlaupin gengu vel á móti Rússum. Varnarleikurinn var ekki nægjanlega öflugur þá og við vorum svolítið passívir. Á móti Austurríki voru við beittari varnarlega og náðum góðum sigri þar. Í kvöld spiluðum við mjög illa,“ sagði Aron Kristjánsson eftir leikinn á móti Þýskalandi í gær.

„Ég hefði auðvitað vilja fá betri frammistöðu frá yngri leikmönnum sem eru að reyna að sanna sig. Í raun var á endanum bara gott að sleppa út úr þessu með ekki stærra tap en 32-24,“ sagði Aron.

„Það vantaði marga inn í þetta hjá okkur í dag og þá líka leikmenn sem voru hérna úti. Þegar frammistaðan er ekki betri hjá leikmönnum þá er enginn til þess að taka við,“ sagði Aron. Þórir Ólafsson var ekki með liðinu og Aron Pálmarsson og Vignir Svavarsson spiluðu lítið. Þá meiddist Ólafur Bjarki Ragnarsson.

„Þetta er búið að vera svolítið meiðslaár í landsliðnu og mikið um forföll. Þá hafa þessir strákar fengið fleiri mínútur og það sem þeir þurfa,“ sagði Aron.

Guðjón Valur Sigurðsson og Arnór Atlason fóru ekki með út en Aron vonast til þess að Arnór getið æft með liðinu á þriðjudaginn. Það er hins vegar lengra í Guðjón Val. „Það kemur ekki í ljós fyrr en seinna í vikunni hvort hann verður klár,“ sagði Aron.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×