Lífið

7000. gesturinn leystur út með gjöfum

Sýningin var upphaflega frumsýnd í Grindavík 2009. Hún var svo valin Barnasýning ársins 2010 á Grímunni og var sýnd í Borgarleikhúsinu sama haust.
Sýningin var upphaflega frumsýnd í Grindavík 2009. Hún var svo valin Barnasýning ársins 2010 á Grímunni og var sýnd í Borgarleikhúsinu sama haust. Fréttablaðið/Vilhelm
Barnasýningin Horn á höfði verður sýnd áfram í vor.

„Það stóð til að hætta sýningum um áramót vegna skorts á geymsluplássi fyrir leikmyndir í Tjarnarbíói – það munaði litlu að við hefðum þurft að detta út af dagskrá, vegna þess að það eru fleiri sýningar að koma inn, en við leystum úr því með að koma upp tjaldi í bakgarðinum á Tjarnarbíói, þar sem við geymum leikmyndina á milli sýninga,“ segir Bergur Þór Ingólfsson, leikstjóri verksins.

Búið er að sýna 60 sýningar allt í allt og á næstu sýningu, þann 26. janúar, verður 7000. gesturinn heiðraður og leystur út með gjöfum.

„Sýningin er líka að verða fimm ára og af því tilefni ætlum við að halda litla afmælisveislu. Svo 7000. gesturinn verður afmælisbarnið í afmælisveislunni okkar,“ segir Bergur, léttur í bragði.

Sýningin hefur ferðast víða um landið en hún var upphaflega frumsýnd í Grindavík 2009. Hún var svo valin Barnasýning ársins 2010 á Grímunni og var sýnd í Borgarleikhúsinu sama haust. Sýningin hefur einnig verið sýnd á Akureyri, svo eitthvað sé nefnt.

Verkið fjallar um drenginn Björn sem vaknar einn morguninn með horn á höfðinu.

„Hann veit ekki af hverju hann er með horn á höfðinu en veit að hann langar ekki til að líta út eins og geit. Því fær hann Jórunni vinkonu sína til að hjálpa sér við að rannsaka málið. Í leit sinni að sannleikanum upphefst atburðarás á mörkum ævintýris og veruleika. Á vegi þeirra verða kostulegir karakterar, Þórir haustmyrkur, klikkuðu kerlingarnar Þórkatla og Járngerður og treggáfuðu bófarnir Már og Kári,“ segir Bergur jafnframt.

Bergur Þór Ingólfsson er einnig höfundur verksins ásamt Guðmundi Brynjólfssyni. Leikarar eru Víðir Guðmundsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson. Eva Vala Guðjónsdóttir sér um leikmynd og búninga, Vilhelm Anton Jónsson semur tónlist og Magnús Arnar Sigurðarson hannar lýsingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.