Menning

Bíður spenntur eftir niðurstöðunum

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Haraldur Jónsson myndlistarmaður.
Haraldur Jónsson myndlistarmaður. Vísir/GVA
„Það er alltaf gaman að fara í læknisskoðun og ég bíð spenntur eftir niðurstöðum rannsóknarinnar,“ segir Haraldur Jónsson myndlistarmaður, spurður hvernig tilfinning það sé að láta kryfja verkin sín opinberlega.

Ástæðan fyrir spurningunni er að efnt verður til samræðu um myndlist hans í Hafnarborg í kvöld. Samræðan ber yfirskriftina Nálgun en tilefni hennar er einkasýning Haraldar, H N I T, sem nú stendur yfir í Sverrissal.

H N I T Sýning Haraldar í Hafnarborg er útgangspunktur samræðunnar í kvöld.
Frummælendur eru Markús Þór Andrésson sýningarstjóri, Harpa Arnardóttir, leikkona og leikstjóri, og Valur B. Antonsson heimspekingur. „Grunnhugmyndin er sú að þau nálgist þetta úr þremur mismundandi áttum,“ segir Haraldur. „Mín aðkoma er sú að ég valdi frummælendurna og hef hitt þau öll sitt í hverju lagi til að tala við þau um feril minn, en hvað þau ætla nákvæmlega að segja veit ég ekki. Svo við höldum okkur við læknisheimsóknarsamlíkinguna þá má segja að ég hafi valið mér heimilislækni en til hvaða aðgerða hann mun grípa er ekki í mínum höndum. Ég verð bara úti í sal eins og aðrir áheyrendur og blanda mér ekki í málið.“

Á sýningunni H N I T eru ný verk, bæði teikningar og skúlptúrar, sem hvert á sinn hátt virkja skynjun mannsins á eigin tilfinningum, upplifun af rými og táknum. Titillinn, H N I T, liggur eins og leiðarstef gegnum sýninguna og vísar til staðsetningar og hreyfinga líkama og tilfinninga í rými sem bæði getur verið hið innra og umhverfis okkur, ferðalag um sýnilegan og ósýnilegan arkitektúr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.