Innlent

Skaðabótamál vegna heilsutjóns þung og erfið

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Skaðabótamál höfðuð gegn starfsmönnum á heilbrigðisstofnunum, þar á meðal Landspítala, fara í gegnum ríkislögmann. Ellefu slík mál voru höfðuð á árunum 2011-2012.
Skaðabótamál höfðuð gegn starfsmönnum á heilbrigðisstofnunum, þar á meðal Landspítala, fara í gegnum ríkislögmann. Ellefu slík mál voru höfðuð á árunum 2011-2012.
Þeir sjúklingar sem sækja bótarétt sinn til Sjúkratrygginga Íslands vegna vanrækslu eða mistaka við læknismeðferð, en fá synjun eða krefjast hærri bóta en þeir fá dæmdar, geta farið í skaðabótamál fyrir dómsstóli.

Þyrí Steingrímsdóttir, lögmaður hjá Acta, hefur sinnt mörgum skaðabótamálum vegna mistaka í heilbrigðiskerfinu og segir hún þessi mál vera afar erfið og þung í framkvæmd.

„Eins og í venjulegu skaðabótamáli þarf að sanna að heilbrigðisstarfsmaður hafi af ásetningi eða gáleysi valdið tjóninu. Að hann beri sannarlega sök. Það getur verið mjög erfitt að sanna það,“ segir Þyrí.

Þyrí Steingrímsdóttir, lögmaður hjá Acta, hefur tekið að sér mörg skaðabótamál vegna heilsutjóns við læknismeðferð.
Hún segir að í hverju máli þurfi að fá hlutlausan matsmann og að mat hans sé grundvallar sönnunargagnið.

„Íslenskt læknasamfélag er svo lítið og mikil tengsl innan samfélagsins þannig að það getur verið erfitt að finna hlutlausan sérfræðing. Það er helst að maður finni íslenskan lækni sem starfar erlendis til að meta málið og tengist viðkomandi heilbrigðisstarfsmönnum sem minnst.“ 

Öll skaðabótamál sem eru höfðuð vegna ábyrgðar starfsmanns heilbrigðisstofnunar fara í gegnum ríkislögmann enda eru þau höfðuð gegn íslenska ríkinu. Á árunum 2011-2012 voru 11 slík mál höfðuð á hendur íslenska ríkinu. Enn er fjórum málið ólokið árið 2014, sýkna var dæmd 

í fjórum tilfellum í héraðsdómi og í þremur tilfellum var bótaskylda dæmd. 

Þegar sök sannast á hendur heilbrigðisstarfsmanni, að hann hafi valdið sjúklingi tjóni, er bótaskylda á hendur íslenska ríkinu vegna vinnuveitandaábyrgðar. 


Tengdar fréttir

Heimasíða um andlát eiginmannsins

Ástríður Pálsdóttir hefur opnað heimasíðu með öllum gögnum um sjúkralegu og andlát eiginmanns síns og um samskipti sín við starfsmenn heilbrigðiskerfisins vegna málsins.

Þriðjungur fær bætur vegna heilsutjóns

Tilkynningum um heilsutjón vegna sjúkdómsmeðferðar hefur fjölgað mikið frá því ný lög tóku gildi árið 2001. Af 110 málum árið 2012 var 91 synjað eða vísað frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×