
Ekki kasta því góða fyrir róða
Í heilbrigðismálum hefur verið hefð fyrir langtímastefnumótun og hver heilbrigðisáætlunin leyst aðra af hólmi á liðnum áratugum. Þannig hefur heilbrigðisáætlun til ársins 2020 verið í undirbúningi um nokkurt skeið. Mikilvægt er að ný áætlun hafi einhver tengsl við fyrri áætlanir og er því nauðsynlegt að gera grein fyrir þróuninni síðustu áratugi.
Heilbrigði allra árið 2000
Árið 1977 samþykkti Alþjóðaheilbrigðisþingið ályktunina um „Heilbrigði allra árið 2000“, sem ári síðar lá til grundvallar Alma Ata-yfirlýsingunni, þar sem megináherslan er lögð á grunnþjónustuna. Þessar ályktanir lágu síðan til grundvallar þeim 38 heilbrigðismarkmiðum sem Evrópuríki settu sér árið 1984. Árið 1987 var lögð fram þingsályktunartillaga á Alþingi um íslenska heilbrigðisáætlun, en hún hlaut ekki samþykki þingsins fyrr en á árinu 1991. Á þeim tíma var lítill skilningur á því að ráðast í gerð heilbrigðisáætlunar og það var ekki fyrr en forstjóri WHO, Dr. Halfdan Mahler, kom á Heilbrigðisþing á Íslandi árið 1988 að ráðamönnum varð ljóst að þeir yrðu að taka sig á í þessum efnum.
Áætlun til 2010
Á tíunda áratugnum var mikil umræða um forgangsröðun og stefnumótun í heilbrigðismálum. Tveimur nefndum var komið á fót. Annars vegar nefnd um forgangsröðun í heilbrigðismálum, og hins vegar nefnd sem falið var að endurskoða heilbrigðisáætlunina í samræmi við breytingar á heilbrigðisþjónustu innanlands sem utan. Afraksturinn af þeirri vinnu var ný heilbrigðisáætlun til ársins 2010 sem samþykkt var á Alþingi vorið 2001. Sú heilbrigðisáætlun markaði að mörgu leyti tímamót því í henni var ekki aðeins varpað fram skýrri framtíðarsýn heldur voru um leið innleidd mælanleg markmið, þannig að á gildistímabili áætlunarinnar var auðveldara en áður að fylgjast með framvindunni og í lokin meta árangurinn af framkvæmd hennar.
Heilsa 2020
Heilbrigðisáætlunin til ársins 2010 rann sitt skeið í lok fyrsta áratugar aldarinnar og um svipað leyti hófst vinna við gerð nýrrar áætlunar til ársins 2020. Í byrjun var aðallega horft til skýrslu nefndar WHO frá 2008 um félagslega áhrifavalda heilsu og þar næst stefnumörkunar Evrópudeildar WHO í heilbrigðismálum til ársins 2020 (Health 2020). Í þeirri stefnu er lögð áhersla á að aðildarríkin vinni sérstaklega að bættri heilsu og vellíðan fólks, dragi úr ójöfnuði, styrki lýðheilsu og tryggi notendamiðað heilbrigðis- og velferðarkerfi, sem er um leið almennt, sanngjarnt og sjálfbært og uppfyllir einnig ýtrustu gæðakröfur. Til viðbótar hefur greining ráðgjafafyrirtækisins Boston Consulting Group á íslensku heilbrigðiskerfi verið lögð til grundvallar frekari útfærslu á afmörkuðum verkefnum.
Úrbætur
Í úttekt Boston Consulting Group var reynt að draga fram megineinkenni heilbrigðiskerfisins og þau borin saman við fyrirkomulag heilbrigðismála í nágrannalöndunum. Alþjóðlegur samanburður sýnir að árangur heilbrigðisþjónustu á Íslandi er með því besta sem gerist í heiminum. Erlendu ráðgjafarnir töldu þó að ýmislegt mætti betur fara og hefur þegar verið ráðist í verkefni sem gengur undir heitinu Betri heilbrigðisþjónusta 2013-2017 og falla þar undir þjónustustýring, hagræðing í rekstri, greiðsluþátttaka einstaklinga, samtengd rafræn sjúkraskrá o.fl.
Vandi heilbrigðiskerfisins er engu að síður mikill og kallar á víðtækar úrbætur og reyndar endurskipulagningu helstu þjónustuþátta. Það verður að tryggja betra jafnvægi milli heilsugæslu, sérgreinalækninga og sjúkrahúsþjónustu. Heilsugæsla verður að geta sinnt hlutverki sínu sem fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustunni og sjúkrahúsin verða að geta annað flestum verkefnum sínum innan tiltekinna tímamarka. Jafnframt þarf að koma á betra skipulagi á sérfræðiþjónustu lækna utan sjúkrahúsa. Þetta kallar óhjákvæmilega á að mótuð verði skýrari heildarsýn og stefnumörkun til lengri tíma. Heilbrigðisáætlunum verður einfaldlega ekki kastað fyrir róða.
Skoðun

Aðför að menntakerfinu
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Er íslenska þjóðin að eldast?
Þorsteinn Þorsteinsson skrifar

Áslaug Arna er framtíðin og sóknarfærið er ungt fólk
Sybil Gréta Kristinsdóttir skrifar

Silja Bára, öruggur og faglegur leiðtogi fyrir Háskóla Íslands
Margrét Gíslínudóttir skrifar

Hvert fer kílómetragjaldið mitt?
Jokka G Birnudóttir, #2459 skrifar

Opið bréf til Nannýjar Örnu Guðmundsdóttir fulltrúa í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga
Jóhanna Ása Einarsdóttir,Gerður Einarsdóttir,Helga Björk Jóhannsdóttir,Margrét Skúladóttir,Bjarney Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar

Eyðileggjandi umræða
Guðný Pálsdóttir,Súsanna Margrét Gestsdóttir skrifar

Lýðræðið sigrar
Snorri Ásmundsson skrifar

Innleiðing fjárhagskerfa skilar í 70% tilfella ekki tilætluðum árangri
Stefán Ingi Arnarson skrifar

Tækifæri til að ljúka mannréttindamáli Þorsteins Pálssonar frá síðustu öld
Bergur Hauksson skrifar

Aðalvandamálið við máltileinkun innflytjenda!
Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar

Lítil breyting sem getur skipt sköpum!
Arnar Steinn Þórarinsson skrifar

Fara mínir kennarar að vinna í Kópavogslaug? Opið bréf til bæjarstjóra
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar

Sósíalistaflokkurinn styður Úkraínu
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Það er samkeppni innan opinbera geirans um starfskrafta kennara
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Nýtt húsnæðiskerfi á Íslandi: Norrænar hugmyndir opna dyrnar fyrir fyrstu kaupendur!
Bjarni Þór Sigurðsson skrifar

Óásættanleg meðferð á fjármunum félagsfólks VR – Hvar var stjórn VR?
Þorsteinn Skúli Sveinsson skrifar

Kjarkur og kraftur til að breyta
Áslaug Hulda Jónsdóttir,Eydís Arna Líndal skrifar

Fjórföldun á stuðningi við Guðrúnu
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Góður fyrsti aldarfjórðungur
Jón Guðni Ómarsson skrifar

Af hverju stríð?
Helga Þórólfsdóttir skrifar

Donald Trump
Jovana Pavlović skrifar

Hvammsvirkjun og framtíð laxfiska í Þjórsá
Dr. Margaret Filardo,Elvar Örn Friðriksson skrifar

Stækkum Sjálfstæðisflokkinn
Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar

Trú- og lífsskoðunarfélög í landi sammannlegs stjórnskipulags – er samt hætta á óeiningu?
Svanur Sigurbjörnsson skrifar

Hvers á Öskjuhlíðin að gjalda?
Eyþór Máni Steinarsson skrifar

Karlveldið hefur enn ansi mörg andlit
Matthildur Björnsdóttir skrifar

Stjórnarskráin
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

„Þetta er atriðið þar sem þið takið til fótanna…”
Marta Wieczorek skrifar

Barátta hafnarverkamanna: Leiðin að viðurkenningu sem samningsaðili
Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar