Menning

Spila Mahler í dag og Pollapönk eftir viku

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur spilað allt frá háklassík til pönks í tuttugu ár.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hefur spilað allt frá háklassík til pönks í tuttugu ár.
Við ætlum að flytja sinfóníu nr. 6 eftir Mahler, sem er risavaxið verk, og þetta verður í fyrsta sinn sem við náum hundrað manns á svið,“ segir Dagbjört Brynja Harðardóttir, framkvæmdastjóri SN. „Við erum í samstarfi við Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Tónlistarskólann á Akureyri og fleiri tónlistarskóla. Guðmundur Óli Gunnarsson, aðalstjórnandi SN, stjórnar og þetta verður stórviðburður.“



Áður en Sinfóníuhljómsveit Norðurlands varð til var til Kammerhljómsveit Akureyrar, sem stofnuð var af kennurum Tónlistarskólans á Akureyri. „En svo stækkaði hljómsveitin og metnaðurinn varð meiri, sem varð þess valdandi að fyrir tuttugu árum var nafninu breytt í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands,“ útskýrir Dagbjört Brynja. „Síðan hefur hljómsveitin vaxið og dafnað og eftir að við fengum menningarhúsið Hof hafa aðstæður hennar breyst mikið til hins betra.“



Hljómsveitin heldur tónleika um það bil einu sinni í mánuði og verkefnavalið er ansi breitt. „Sinfónían bregður sér í allra kvikinda líki,“ segir Dagbjört Brynja. „Í dag er það Mahler en eftir viku, á sumardaginn fyrsta, munum við spila pönk með Pollapönki í Hofi og þá verða með okkur 250 nemendur úr Tónlistarskólanum á Akureyri. Þessi gjörólíku verkefni endurspegla vel hvað SN er orðin fjölhæf hljómsveit og að hún vílar ekki fyrir sér að stökkva úr einu hlutverki í annað.“



Tónleikarnir í Hofi í dag hefjast klukkan 16 og enn eru örfá sæti laus.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.