Tónlist

Stökkpallur fyrir ungar og efnilegar hljómsveitir

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Kristján Haraldsson eigandi Stúdíó Hljóms.
Kristján Haraldsson eigandi Stúdíó Hljóms.
„Við erum að gera þetta til þess að gefa ungum og efnilegum hljómsveitum ákveðinn stökkpall og byr í seglin,“ segir Kristján Haraldsson, eigandi Stúdíó Hljóms. Hann stendur fyrir keppni sem kallast Eflum íslenskt tónlistarlíf og fer keppnin fram á Gamla Gauknum í kvöld, í formi tónleika.

„Þetta eru tónleikar á Gauknum þar sem sveitirnar koma fram og keppast um að fá að taka upp lag frítt í Stúdíói Hljóm,“ útskýrir Kristján. Áhorfendur á svæðinu kjósa svo í lýðræðislegum kosningum sigurvegarana og er því engin sérstök dómnefnd að dæma. Hver hljómsveit hefur fimmtán mínútur til þess að heilla áhorfendur.

„Það eru bönd að taka þátt sem hafa til dæmis tekið þátt í Músíktilraunum. Til dæmis í fyrra tók hljómsveitin In The Company of Men þátt en hún hafði skömmu áður lent í öðru sæti í Músíktilraunum.“

Hljómsveitin Texas Muffin sigraði í síðustu keppni.
Kristján segir það ekki sjálfgefið að ungar hljómsveitir fái svona tækifæri en þetta er í sjötta sinn sem hann stendur fyrir svona keppni. „Þetta hefur alltaf gengið mjög vel og hefur salurinn ávallt verið þétt setinn. Það er líka gaman að sjá hljómsveitirnar kynnast, því oft sér maður hljómsveitir spila saman á tónleikum eftir að hafa spilað í þessari keppni og vinskapur myndast,“ bætir Kristján við.

Allir tónleikarnir eru teknir upp og upptökurnar verða svo spilaðar í útvarpsþættinum Skúrinn á Rás 2 á næstunni.

Í kvöld keppa hljómsveitirnar:

Aeterna

Daedra

Skerðing

Hörmung

Rafmagnað.

Húsið opnar klukkan 21.00 og fyrsta sveit stígur á stokk á slaginu 22.30.

Það er frítt inn á tónleikana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.