Lífið

Lýsið helltist yfir mig alla

Marín Manda skrifar
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
Nafn? Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir.



Aldur? 20 ára.

Starf? Photo Editor hjá Plain Vanilla.

Maki? Nei, enginn svoleiðis.

Stjörnumerki? Bogakona.

Hvað fékkstu þér í morgunmat? Ég var frekar sein í morgun og hafði ekki tíma fyrir morgunmat en ákvað þó að taka lýsið mitt sem síðan helltist yfir mig alla – algjör illa lyktandi leiðindi – þurfti að skipta um föt.

Uppáhalds staður? Snæfellsnesið og þá helst Stykkishólmur, fallegasti bærinn á landinu með bestu ömmu í heiminum.

Hreyfing? #hjólaðívinnuna er í fullum gangi á vinnustaðnum, síðan reyni ég að lyfta nokkrum sinnum í viku, alveg sjúklega þungum lóðum.

Uppáhalds fatahönnuður? Ég hef ekki mikið pælt í því þar sem ég kaupi nánast allt notað. Ef ég ætti að ganga í einhverju öðru ferskara þá hefði ég ekkert á móti öllu Acne.

Uppáhalds bíómynd? The Lord of the Rings-þríleikurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.