Verður ekkert vandamál að mæta í Vodafone-höllina Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. maí 2014 06:15 Stefán tekst nú á við nýja og spennandi áskorun. fréttablaðið/daníel „
Ég er búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Fram,“ segir Stefán Arnarson, fráfarandi þjálfari Íslandsmeistara Vals og nýráðinn þjálfari kvennaliðs Fram. Stefán var að bræða með sér að taka sér frí frá þjálfun eftir sex farsæl ár með Valsstúlkur. „Þetta er ný áskorun og Fram er með mjög efnilegt lið. Ég hef átt frábær ár hjá Val og held ég hafi kreist úr því liði það sem hægt var. Því er gott að snúa sér að öðru verkefni núna. Þetta Fram-lið er mjög spennandi og það er fín umgjörð í kringum kvennaliðið, sem er mikill kostur.“ Einu sinni þótti það mikil synd er menn skiptu á milli Fram og Vals. Það þykir ekki vera neitt stórmál lengur og Stefán hlakkar bara til að koma aftur á sinn gamla heimavöll. „Það eru flestir vinir mínir þar og þetta verður því ekkert vandamál. Ég er alveg klár á því að þeir verða enn vinir mínir næsta vetur. Þetta er gott fólk.“ Stefán er ekki enn byrjaður að skoða leikmannamál félagsins en hann segir ólíklegt að hann reyni að lokka einhverjar stelpur úr Valsliðinu yfir í Safamýrina. „Ég er mjög ánægður með þessa ákvörðun en því er ekki að leyna að ég var mikið að pæla í því að taka frí. Þetta tækifæri er aftur á móti mjög spennandi og ég ákvað að slá til.“
Olís-deild kvenna Mest lesið Sautján ára stelpa þénar hundruð milljóna í súrknattleik Sport „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Ólympíufari í snjóbrettafimi lést í snjóflóði Sport Amorim hissa á fólkinu í kringum Rashford Fótbolti Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Enski boltinn Rooney og Lampard mætast í fyrsta sinn sem þjálfarar Enski boltinn Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Fótbolti Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og stórleikur í NBA Sport Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Enski boltinn Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Enski boltinn Fleiri fréttir Viggó færir sig um set á nýju ári Stórsigur í toppslag og Melsungen með fjögurra stiga forystu Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Viktor Gísli góður þegar Wisla Plock fór á toppinn Negla Elínar Klöru eitt af flottustu mörkum EM Kolstad vann toppslaginn Dana áberandi í síðasta leik ársins Leik Gísla og félaga í Magdeburg frestað vegna árásarinnar Rosalegur hæðarmunur á liðsfélögum íslensku strákanna Lærisveinar Guðmundar fara í frí með góðan sigur að baki Arnór frá Gumma til Arnórs Ósáttir Harðarmenn stofnuðu kröfu í heimabanka dómara Staðfesta 10-0 sigur ÍBV gegn Haukum Íslendingaliðið heldur áfram í undanúrslit Lærisveinar Guðjóns Vals úr leik í bikarkeppninni „Jólin eru ekki alveg eins afslöppuð“ Þyrfti kraftaverk til að Ómar yrði með á HM Þetta eru strákarnir sem spila fyrir Ísland á HM Snorri kynnti HM-hóp Íslands Lofaði konunni að flytja ekki til Íslands Framarar slógu út bikarmeistarana Afturelding í bikarúrslitin Dana Björg næstmarkahæst í sigri í toppslag Þórir gæti orðið þjálfari ársins í tveimur löndum „Ég er bara búinn að vera að jafna mig“ Stelpurnar hans Þóris tryggðu sér tvær milljónir hver Kvaddi á sama tíma og Þórir en sagði liðsfélögunum ekki frá því Guðmundur Bragi og félagar verða með á bikarúrslitahelginni Stjörnumenn fyrstir í bikarúrslitin Lærisveinar Gumma Gumm úr leik í bikarnum Sjá meira