Lífið

George Clooney í það heilaga í september

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikarinn George Clooney gengur að eiga lögfræðinginn Amal Alamuddin í september á Ítalíu samkvæmt heimildum tímaritsins People.

George á hús við Como-vatn en brúðkaupið mun þó ekki fara fram þar heldur á afviknum stað sem óljóst er hvar er.

George bað Amal í apríl á þessu ári en turtildúfurnar byrjuðu að stinga saman nefjum í október á síðasta ári.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.