Lífið

„Ég sakna þín og fyrirgefðu“

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Robin og Paula.
Robin og Paula. Vísir/Getty
Tónlistarmaðurinn Robin Thicke flutti lagið Forever Love á BET-verðlaunahátíðinni en lagið er að finna á næstu plötu kappans, Paula.

Lögin á plötunni skrifaði hann til fyrrverandi eiginkonu sinnar, leikkonunnar Paulu Patton, en þau skildu fyrr á þessu ári eftir áralangt hjónaband.

„Mig langar að tileinka þetta lag konu minni. Ég sakna þín og fyrirgefðu,“ sagði Robin áður en hann söng lagið á hátíðinni en skilnaður þeirra hjóna kom í kjölfarið á fréttum um að Robin hefði haldið framhjá henni.

Robin frumsýndi nýverið myndband við lagið Get Her Back á YouTube. Lagið samdi hann um Paulu og kemur meðal annars fram í textanum að tónlistarmaðurinn vilji fá annað tækifæri og byrja aftur með ástinni sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×