Lífið

Eiríkur Jónsson nýr ritstjóri Séð og Heyrt

ingvar haraldsson skrifar
Eiríkur mun ritstýra Séð og Heyrt samhliða því að stýra eirikurjonsson.is.
Eiríkur mun ritstýra Séð og Heyrt samhliða því að stýra eirikurjonsson.is.
Búið er að ráða nýjan ritstjóra á Séð og heyrt. Eiríkur Jónsson mun í vikunni snúa aftur í ritstjórastól blaðsins. Eiríkur stýrði blaðinu síðast frá árinu 2007 til septemberloka 2010. Að undanförnu hefur Bergrún Íris Sævarsdóttir gegnt starfi ritstjóra.

Eiríkur segir þetta spennandi tækifæri og stefnir hann að því að setja sinn svip á blaðið. Eiríkur segist vilja koma Séð og heyrt á þann stað í samfélaginu þar sem blaðið eigi heima.

Þrátt fyrir hinn nýja starfsvettvang mun Eiríkur enn stýra vefmiðlinum eirikurjonsson.is.

„Miðlarnir munu lifa hlið við hlið. Þetta er eins og að eignast annað barn, eftir fyrsta barnið munar mann ekki svo mikið um barn númer tvö.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.