Tónlist

Hátt til lofts og vítt til veggja

Baldvin Þormóðsson skrifar
Hildur Elísa og Hilma Kristín spila báðar á klarínett.
Hildur Elísa og Hilma Kristín spila báðar á klarínett.
„Við erum mjög góðar vinkonur og ákváðum að nýta okkur það að við séum báðar í tónlistarnámi,“ segir Hildur Elísa Jónsdóttir en hún stofnaði klarínettudúettinn Dúó Nítsirkasíle ásamt vinkonu sinni Hilmu Kristínu Sveinsdóttur á dögunum.

„Við sóttum síðan líka um skapandi sumarstarf í Kópavogi, þannig að við erum svona að slá tvær flugur í einu höggi,“ segir Hildur Elísa en stelpurnar spila mest ný verk eftir tónsmíðanemendur í Listaháskóla Íslands og gamla klassík inni á milli en þær hafa þegar haldið tvenna tónleika sem Dúó Nítsirkasíle og verða þriðju tónleikarnir í kvöld klukkan 20.

„Hún Ýr Jóhannsdóttir er með opna vinnustofu heima hjá sér á milli klukkan 17 og 20 og við spilum í beinu framhaldi af því,“ segir Hildur Elísa en á stofutónleikunum verða frumflutt tvö ný verk eftir Hlöðver Sigurðsson og Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur.

Ýr Jóhannsdóttir hefur vakið mikla athygli fyrir nýstárlega fatahönnun en hún prjónar undir nafninu Ýrúrarí. Vinnustofan og tónleikarnir fara fram á heimili hennar að Ennishvarfi 13 í Vatnsendanum en aðspurð hvort Hildur Elísa sé ekki stressuð vegna plássleysis segir hún svo ekki vera. „Það er hátt til lofts og vítt til veggja.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.