Tónlist

Stony sendir frá sér eigin tónlist

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Þorsteinn Sindri Baldvinsson, eða Stony sendir frá sér nýtt frumsamið efni.
Þorsteinn Sindri Baldvinsson, eða Stony sendir frá sér nýtt frumsamið efni. mynd/baldur kristjáns
„Síðustu fimm ár hef ég verið að búa til tónlist inni í herbergi og er loksins að fara opinbera hana,“ segir hinn 21 ára gamli tónlistarmaður Þorsteinn Sindri Baldvinsson, betur þekktur sem Stony.

Hann hefur nú sent frá sér sitt fyrsta smáskífulag sem ber nafnið, Feel Good. Lagið varð til fyrir um þremur árum en textinn er nýr.

Stony er líklega best þekktur fyrir myndböndin sín á rásinni StonysWorld á Youtube en þar leikur hann helst á trommur en í tónlistinni sinni spilar hann ekki bara á trommur. „Ég rappa, syng og spila á ýmis hljóðfæri í tónlistinni minni.“ Spurður út í hæfni sína í því að kveða rímur og sönghæfnina segir Stony: „Það kemur allavega í ljós núna en ég hef bara gaman að þessu.“

Á þessum fimm árum hefur Stony samið fjölda laga sem bíða þess að líta dagsins ljós. „Ég var að fara í gegnum tölvuna og sá að ég er með um 75 lög sem eru ekki alveg tilbúinn, ég hef ekki nógu góða athygli til að klára þetta,“ segir Stony og hlær.

Hann er þó með þrjú lög sem er næstum því tilbúinn, fyrir utan það lag sem kemur nú út. Hann nýtur þó dyggrar aðstoðar Styrmis Haukssonar sem sér um að mastera lögin hans og þá aðstoðaði Vignir Snær Vigfússon hann í einu lagi.

Stony hefur verið tíður gestur á skjám landsmanna eftir að hann kom fram í Pepsi auglýsingu fyrir skömmu, hvernig er að sjá sjálfan sig í sjónvarpinu oft á dag? „Það er fáránlegt, ég fór til dæmis í bíó um daginn og sá þetta þar, ég veit eiginlega ekki hvað ég á að hugsa,“ segir Stony léttur í lundu.

Hann vinnur nú hörðum höndum að tónlist sinni og gæti ný plata litið dagsins ljós um mitt árið 2015.

Hér má nálgast útvarpsviðtal við kappann í Morgunþættinum á FM 957 í morgun.


Tengdar fréttir

Ungur trommari í vinnu hjá Youtube

Þorsteinn Baldvinsson er 18 ára trommari sem byrjaði að gera myndbönd sér til skemmtunar, en er núna kominn í vinnu hjá Youtube. Allt að hundrað þúsund manns horfa á myndböndin sem hann setur á netið.

Datt á Lionel Messi í tökunum

Þorsteinn Sindri Baldvinsson, betur þekktur sem Stony, leikur aðalhlutverkið í nýrri, alþjóðlegri auglýsingu fyrir Pepsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.