Eldurinn náði í húsnæði Tandoori, Promennt, Rekstrarlands og Griffils. Ljóst er að húsnæði margra þessara fyrirtækja er gjörónýtt.
Hættuástandi var lýst yfir í kjölfar þess að slökkvilið mætti á svæðið og fólk var beðið um að halda sig frá. „Húsin voru orðin alelda þegar við komum,“ sagði Þorvaldur Geirsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu. „Eldsupptök voru í Fannarhúsinu og breiddi eldurinn sig yfir í húsnæði Griffils. Við reyndum ekki að slökkva eldinn heldur einungis að koma í veg fyrir frekari útbreiðslu.“

Mikinn mannfjölda dreif að en lögregla bað fólk að halda sig fjarri vegna hættu sem stafaði af brunanum. Sprengingar gullu við og hætta á hruni byggingarinnar torveldaði störf slökkviðlismanna.
Svart reykjarský sem myndaðist yfir svæðinu sást langar leiðir og mikil reykjarlykt lagðist yfir höfuðborgarsvæðið.
„Svo virðist sem eldurinn hafi komið upp í þvottahúsinu okkar,“ sagði Þorvarður Helgason, verkstjóri hjá Fönn. Enginn var við störf þegar eldurinn kom upp en unnið hafði verið í þvottahúsinu fyrr um daginn. „Þar er náttúrulega mikill eldsmatur, þar sem við erum að þvo lín fyrir hótel og öldrunarheimili,“ sagði Þorvarður.

„Þessi hús eru öll gömul og börn síns tíma,“ sagði Bjarni Kjartansson, sviðsstjóri forvarnarsviðs slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Bjarni man eftir mörgum alvarlegum eldsvoðum í gegnum tíðina en þessi er sérstakur að einu leyti. „Í fljótu bragði man ég ekki eftir jafnmiklu flatarmáli sem hefur verið undir í svona alvarlegum eldi.“ Skeifan 11 er um 8.200 fermetrar.


