Kanarí fjallar um hæglátan mann sem býr á Íslandi með kærustu sinni. Hún ákveður að flytja utan í nám sem skapar vandamál því maðurinn er flughræddur. Hann leitar sér hjálpar en lokum meðferðarinnar er fagnað með ferð til Þýskalands sem breytist í martröð og festist maðurinn á flugvellinum í Düsseldorf.
„Í ferðalaginu uppgötvar maðurinn mikilvæga hluti um sig sjálfan, sambönd sín og flughræðslan verður myndlíking fyrir að fylgja eðlishvötum sínum,“ segir Hafsteinn í samtali við Variety.
Þá bætir hann við að titill myndarinnar hafi upprunalega verið vísun í Kanaríeyjar en sé nú vísun í kanarífuglinn.