Sony kennir nafninu um hrakfarir myndarinnar Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar 24. júlí 2014 11:00 Tilraun hjónanna til að krydda kynlífið fer á versta veg.
Kvikmyndin Sex Tape var frumsýnd á Íslandi í gær en í henni leika Jason Segel og Cameron Diaz hjón sem hafa verið gift í áratug og eiga tvö börn. Þau ákveða að gera kynlífsmyndband til að blása smá lífi í hjónabandið en það endar með ósköpum. Jay, karakter Jasons, deilir óvart myndbandinu með öllum sem þau þekkja, og jafnvel fólki sem þau þekkja ekki og reyna hjónin allt til að fjarlægja myndbandið af netinu. Myndin hefur ekki fengið góða dóma gagnrýnenda og þénaði aðeins fimmtán milljónir dollara um frumsýningarhelgina í Bandaríkjunum, tæpa tvo milljarða króna. Er þetta ein versta frumsýningarhelgi myndar með Cameron Diaz í aðalhlutverki en myndin kostaði um fjörutíu milljónir dollara í framleiðslu, um fjóra og hálfan milljarð króna. Myndin er framleidd af Sony Pictures og segir Rory Bruer hjá fyrirtækinu að titill myndarinnar gæti hafa sett strik í reikninginn. „Við gerðum sæta, fyndna, rómantíska gamanmynd með stjörnum sem við elskum en titillinn er ruglandi fyrir suma,“ segir hann í viðtali við Hollywood Reporter. Myndin var í fjórða sæti yfir aðsóknarmestu myndirnar á frumsýningarhelginni. Í fyrsta sæti var Dawn of the Planet of the Apes, í öðru The Purge: Anarchy og í því þriðja var fjölskyldumyndin Planes: Fire and Rescue.vísir/gettyLenti í kynlífsmyndbandaskandalRob Lowe fer með eitt af aukahlutverkunum í Sex Tape en hann lenti sjálfur í kynlífsmyndbandaskandal árið 1989, eins og margar stjörnur hafa lent í. Myndband af honum að stunda kynlíf með tveimur konum lak til fjölmiðla en önnur konan var sextán ára og hin 22 ára. Var myndbandið tekið upp kvöldið fyrir fund demókrata en á þessum tíma var Rob dyggur stuðningsmaður Michaels Dukakis. Þá lak annað myndband einnig á netið. Þar sást Rob með vini sínum, Justin Moritt, stunda kynlíf og munnmök með bandarískri fyrirsætu að nafni Jennifer í hótelherbergi í París. Sú upptaka var ein af fyrstu kynlífsmyndböndunum sem voru seld á opnum markaði og skartaði stjörnu í „aðalhlutverki“. Ímynd Robs bauð hnekki en innan nokkurra ára náði hann að bæta hana og gerði meira að segja grín að þessu öllu saman í skemmtiþættinum Saturday Night Live.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Falska söngkonan á leið í meðferð Lífið Eva segir lífið betra með Kára Stefáns Lífið Tíu myndarleg einbýlishús á höfuðborgarsvæðinu Lífið Erfið lífsreynsla að þurfa að yfirgefa heimili sitt Lífið Gísli Pálmi í fótbolta með Barry Keoghan Lífið Sara Davíðs fann ástina í örmum flugstjóra Lífið „Unun að troðið sé á manni þegar svona er“ Lífið Hélt niðri í sér hlátrinum yfir fölskum þjóðsöngnum Lífið Hildur Vala og Kjartan keyptu raðhús í Fossvogi Lífið Logi Bergmann var tekinn Lífið Fleiri fréttir Tobey Maguire er á landinu Fyrsta stiklan úr Gladiator II Jon Landau er látinn Brad Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira