Bíó og sjónvarp

Spennandi samstarf Vesturports og 365

Fyrsta myndin í fullri lengd sem Björn Hlynur leikstýrir.
Fyrsta myndin í fullri lengd sem Björn Hlynur leikstýrir. MYND/Vesturport
Tökur hófust í vikunni á kvikmyndinni Blóðbergi, en hún er framleidd af Vesturporti í samvinnu við 365 miðla og framleiðslufyrirtækið Pegasus.

Að sögn Jóhönnu Margrétar Gísladóttur, framkvæmdastjóra sjónvarpssviðs 365 miðla, er um nokkuð einstakt samstarf að ræða.

„Þetta er rosalega spennandi verkefni,“ segir Jóhanna Margrét.

„Mér skilst að þetta sé í fyrsta sinn sem mynd af þessari stærðargráðu er frumsýnd í íslensku sjónvarpi.“

á setti Leikstjórinn ræðir við aðalleikarana, Hilmar Jónsson og Hörpu Arnardóttur. MYND/VESTURPORT
Til stendur að Blóðberg verði frumsýnd í tveimur hlutum á Stöð 2 eftir áramót, og í heild sinni í kvikmyndahúsum á svipuðum tíma. Jóhanna Margrét segir að engin ákvörðun hafi verið tekin um fleiri framleiðsluverkefni af þessu tagi.

„Við erum bara spennt fyrir því að sjá hvernig þetta verkefni gengur,“ segir hún.

„Þetta er náttúrulega bara hluti af öflugri, innlendri dagskrárgerð hjá Stöð 2.“

Það er Björn Hlynur Haraldsson sem leikstýrir myndinni en handritið er byggt á leikriti hans, Dubbeldusch, sem Vesturport setti fyrst upp árið 2008.

Sagan er gamansöm með alvarlegum undirtón og fjallar um hefðbundna íslenska fjölskyldu í úthverfi Reykjavíkur sem þarf að takast á við gamalt leyndarmál, sem einn daginn bankar upp á og þá breytist allt. 

Tæknileg atriði Stefnt er á að frumsýna myndina eftir áramót.
Rakel Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Vesturports, segir tökur fara vel af stað.

„Myndin er búin að vera lengi í þróun hjá okkur í Vesturporti og hún ætti að höfða til allra,“ segir Rakel.

Hún bendir á að hægt að sé að fylgjast með tökum á Facebook-síðunni Blóðberg og undir #bloðberg á Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.