Sirkustjaldið Jökla fer í tímabundið frí Anna Ágústsdóttir skrifar 26. ágúst 2014 11:00 Sirkuslistamennirnir sjá sjálfir um að setja tjaldið upp og taka það niður. Vísir/Andri Marinó „
Við eigum eftir að heimsækja fullt af stöðum í kringum Ísland. Jökla er komin til að vera,“ segir Margrét Erla Maack sem ásamt félögum sínum í Sirkusi Íslands var að ljúka við að taka sirkustjaldið Jöklu niður á Klambratúni. Viðburðaríkt sýningasumar er að baki en Jökla hefur ferðast víða með sirkushópnum. Alls hafa 104 sýningar verið settar upp í tjaldinu frá því í júní. Ekki liggur fyrir hversu margir hafa sótt sýningarnar en uppselt var alla laugardaga og sunnudaga í sumar. Samkvæmt Margréti Erlu var fjöldi sýningargesta einhvers staðar á milli fjölda þátttakenda í Reykjavíkurmaraþoninu og gesta á tónleikum Justins Timberlake. Uppsetning tjaldsins er nokkuð tímafrek en það tekur tvo vinnudaga að koma því upp og á bilinu níu til tólf klukkustundir tekur að taka það niður. Tjaldið er á leið í geymslu til TvG-Zimsen, samstarfsaðila Sirkus Íslands, en Margrét Erla útilokar ekki að Jökla verði tekin fram aftur á næstu mánuðum. Veður og frost í jörðu eru þættir sem geta haft áhrif á uppsetningu tjaldsins og hafa þarf það í huga áður en mögulegt er að plana sýningar í til dæmis desember. „Við þurfum bara að redda okkur hitara,“ segir Margrét sem virðist ekki láta margt stoppa sig. Þótt Jökla sé komin í tímabundið frí er ekkert frí fram undan hjá Sirkus Íslands en í vetur verður meðal annars boðið upp á sirkusskóla og námskeið fyrir börn og fullorðna ásamt því að koma fram við hin ýmsu tilefni.
Mest lesið Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Menning Þetta borðuðu Jói Fel og frú í sex mánuði Matur Frumsýning á Vísi: Bannað að hlæja í boði sem er bannað börnum Bíó og sjónvarp Edda Falak fagnar tveimur mánuðum sem móðir Lífið Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn? Lífið „Erfitt að vera kominn á stað sem ég hélt að yrði minn hinsti hvíldarstaður“ Lífið 400 fermetra glæsihús með lyftu í Garðabæ Lífið „Ég átti mér draum um að vinna á ruslabíl“ Lífið Fjölskylda Matthew Perry tjáir sig í fyrsta skipti Lífið Uppgefin á stressinu um miðnætti Lífið Fleiri fréttir Uppgefin á stressinu um miðnætti Edda Falak fagnar tveimur mánuðum sem móðir Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn? Myndaveisla: Skvísur landsins létu stressið líða úr sér Fjölskylda Matthew Perry tjáir sig í fyrsta skipti 400 fermetra glæsihús með lyftu í Garðabæ „Erfitt að vera kominn á stað sem ég hélt að yrði minn hinsti hvíldarstaður“ Big sexy og Jói Fel tókust á í bjórþambi Heilsuráð Önnu Eiríks fyrir haustið „Ég átti mér draum um að vinna á ruslabíl“ „Alla dreymir um að eiga geit“ Hafi liðið sem gísl í Argentínu Símon veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta Valdi Hugh Jackman fram yfir eiginmanninn Sunneva viðstödd fæðingu sonar Jóhönnu Skálað fyrir skarti í Silfursmára Tarsan-leikari látinn Átján ára og ólétt en lét það ekki stoppa sig Óneitanlega óhugnanlegt að horfast í augu við ljón Sýnir örin í fyrsta sinn Laufey Lín í bíó Kitlar að skella sér í stjórnmálin Djúpir litatónar og sjarmi við Laugardalinn Stamaði svo mikið að hann varð að fara í talþjálfun í fimm ár Hrakfallasaga Sigga mæjó í Liverpool Arnhildur hlaut umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs Að prófa sig áfram í opnu sambandi Smart og hlýlegt fjölskylduhús Michael Newman látinn Tveir urðu að sjö: „Ég veit ekki neitt hvað ég að gera“ Sjá meira