Ísbíllinn tekur öll völd Gunnar Leó Pálsson skrifar 30. ágúst 2014 12:00 Ásgeir Baldursson, eigandi Ísbílsins, er hér með tvo vinsælustu ísa sumarsins, Hnetutopp og Turkish Pepper. vísir/daníel „
Við erum alltaf að verða meira áberandi, sérstaklega vegna þess að við byrjuðum ekki að keyra á höfuðborgarsvæðinu fyrr en árið 2012,“ segir Ásgeir Baldursson, eigandi fyrirtækisins Ísbílsins, en Ísbíllinn sjálfur stendur á tímamótum og fagnar tuttugu ára afmæli sínu í ár. Ísbíllinn er lítið fjölskyldufyrirtæki sem byrjaði með einum bíl um hvítasunnuna árið 1994. „Við byrjuðum í Árnessýslu og vorum að mestu bara í felum í sveitinni þangað til við fórum að keyra á höfuðborgarsvæðinu,“ bætir Ásgeir við. Í dag rekur Ísbílaútgerðin ehf. tíu Ísbíla um allt land. „Ellefti bíllinn er á leiðinni, við erum alltaf að stækka leiðakerfið.“ Áætlun hvers árs nær frá mars fram í desember: einu sinni í mánuði á vorin og haustin en tvisvar í mánuði á sumrin. Engar áætlunarferðir eru í janúar og febrúar. Ísbíllinn hefur verið áberandi hvert sem hann fer, enda er bjöllu hringt til að gera almenningi viðvart um komu bílsins. „Við förum líka í sérferðir fyrir fyrirtæki sem oft panta bíl,“ bætir Ásgeir við. Aðalsmerki Ísbílsins er að veita framúrskarandi þjónustu og leggur hann áherslu á að allir getifundið ís við sitt hæfi. „Við erum með ís fyrir alla, sykurlausan ís, laktósafrían ís, lífrænan ís, mjólkurlausan ávaxtaís og hitaeiningasnauðan ís auk hefðbundins rjómaíss, jurtaíss og frostpinna.“ En hvaða ís er vinsælastur? „Hnetutoppurinn er vinsælastur en Turkish Pepper-ísinn er að koma sterkur inn,“ segir Ásgeir. Bíllinn selur allt í allt fimmtíu sortir af ís en 33 í stakri sölu. „Við erum einnig farin að selja fisk og pitsur í Ísbílnum,“ bætir Ásgeir við, og því greinilegt að Ísbíllinn er að sækja í sig veðrið.
Mest lesið Valgeir sár og Bubbi og Bó hneykslaðir Menning Þetta borðuðu Jói Fel og frú í sex mánuði Matur Frumsýning á Vísi: Bannað að hlæja í boði sem er bannað börnum Bíó og sjónvarp Edda Falak fagnar tveimur mánuðum sem móðir Lífið Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn? Lífið „Erfitt að vera kominn á stað sem ég hélt að yrði minn hinsti hvíldarstaður“ Lífið 400 fermetra glæsihús með lyftu í Garðabæ Lífið „Ég átti mér draum um að vinna á ruslabíl“ Lífið Fjölskylda Matthew Perry tjáir sig í fyrsta skipti Lífið Uppgefin á stressinu um miðnætti Lífið Fleiri fréttir Uppgefin á stressinu um miðnætti Edda Falak fagnar tveimur mánuðum sem móðir Hvaða stjórnmálaleiðtogi væri besti drykkjufélaginn? Myndaveisla: Skvísur landsins létu stressið líða úr sér Fjölskylda Matthew Perry tjáir sig í fyrsta skipti 400 fermetra glæsihús með lyftu í Garðabæ „Erfitt að vera kominn á stað sem ég hélt að yrði minn hinsti hvíldarstaður“ Big sexy og Jói Fel tókust á í bjórþambi Heilsuráð Önnu Eiríks fyrir haustið „Ég átti mér draum um að vinna á ruslabíl“ „Alla dreymir um að eiga geit“ Hafi liðið sem gísl í Argentínu Símon veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta Valdi Hugh Jackman fram yfir eiginmanninn Sunneva viðstödd fæðingu sonar Jóhönnu Skálað fyrir skarti í Silfursmára Tarsan-leikari látinn Átján ára og ólétt en lét það ekki stoppa sig Óneitanlega óhugnanlegt að horfast í augu við ljón Sýnir örin í fyrsta sinn Laufey Lín í bíó Kitlar að skella sér í stjórnmálin Djúpir litatónar og sjarmi við Laugardalinn Stamaði svo mikið að hann varð að fara í talþjálfun í fimm ár Hrakfallasaga Sigga mæjó í Liverpool Arnhildur hlaut umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs Að prófa sig áfram í opnu sambandi Smart og hlýlegt fjölskylduhús Michael Newman látinn Tveir urðu að sjö: „Ég veit ekki neitt hvað ég að gera“ Sjá meira