Lífið

Var fleygt út af virtri listavefsíðu

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Listamaðurinn Odee heldur sýningu á Ljósanótt í Keflavík.
Listamaðurinn Odee heldur sýningu á Ljósanótt í Keflavík. mynd/Jón Tryggvason
„Þetta er í rauninni tjáningarfrelsi gagnvart höfundinum, segjum sem svo að ég taki mynd innan úr ísskápnum, og segi það vera listaverk, þá myndi Vífilfell kannski hringja og segja að það megi nota Kók í listaverkinu. Þar sem ég er samtímalistamaður þá fjalla ég í rauninni myndrænt um vinsæla minningu og til dæmis margt sem er vinsælt núna,“ segir listamaðurinn Oddur Eysteinn Friðriksson, betur þekktur undir listamannsnafninu Odee.

Hann hefur valdið talsverðu fjaðrafoki á stærstu listamannasíðu á netinu, deviantart.com, en á fjórum dögum fékk hann 10.000 hitt, og rúmlega 1.000 skilaboð. „Svona 950 af skilaboðunum voru neikvæð þar sem menn voru að kalla mig þjóf og ég fékk meira að segja hótanir,“ segir Odee en honum var fleygt út af síðunni í kjölfarið. Ástæðan er sú að Odee tekur í raun höfundarréttarvarið efni og notar það nánast óbreytt til þess að búa til ný listaverk úr því, um er að ræða svokallaðan klippimyndastíl.

„Ég tók tíma í rannsóknarvinnu því ég vildi vera viss um að þetta væri einstakt. Ég þurfti að finna hvernig ég ætlaði að prenta verkin, svo þurfti ég að rannsaka hvort þetta væri löglegt, þetta er á svo gráu svæði í listaheiminum,“ útskýrir Odee.

Það sem gerir verk hans einstök er að hann sendir þau til Bandaríkjanna og lætur prenta þau í ál. „Ég veit ekki um neinn annan hér á landi sem gerir þetta. Ég hef séð menn líma filmur á álplötur, en ég læt brenna í álið, líkt og gert er með kókdósina.“

Odee verður með sýningu á Ljósanótt í Keflavík um helgina í Svarta pakkhúsinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.