Best varðveitta leyndarmálið Karl Garðarsson og Vilhjálmur Árnason skrifar 5. september 2014 00:00 Á síðasta ári voru 355 heimilisofbeldismál skráð hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ætla má að þetta sé aðeins lítill hluti þeirra brota sem eiga sér stað og að þessi mál skipti þúsundum – heimilisofbeldi er nefnilega oft best varðveitta leyndarmál fjölskyldunnar. Umfangið er slíkt að það er full ástæða til að gefa málaflokknum mun meiri athygli en gert hefur verið. Konur eru oftast þolendur heimilisofbeldis, en íslensk könnun sem gerð var árið 2010 leiddi í ljós að um 22% kvenna sögðust hafa verið beittar ofbeldi af maka eða fyrrverandi maka. Heimilisofbeldi er þjóðarmein. Hugtakið er notað til að lýsa ofbeldi sem konur og karlar verða fyrir af hálfu núverandi eða fyrrverandi maka, hvort sem um er að ræða hjón eða sambýlisfólk. Börn sem búa á heimili geta verið beinir eða óbeinir þolendur heimilisofbeldis. Þetta eru oft mjög erfið mál að eiga við þar sem þau tengjast einkalífi og tengsl milli geranda og þolanda eru oft mjög mikil. Það leiðir síðan oft til þess að þeir sem verða fyrir slíku ofbeldi eru tregir til að leggja fram kæru og halda áfram með málið í gegnum dómskerfið. Þá er vantrú á að dómskerfið taki í raun á vandamálinu. Oft er fallið frá kæru, enda er viðkomandi oft háður gerandanum, t.d. fjárhagslega. Hótanir um frekara ofbeldi fæla fólk líka frá því að kæra. Slík mál stoppa gjarnan í réttarvörslukerfinu, en aðeins er haldið áfram með þau alvarlegustu. Oft er gripið til þess ráðs að veita þolendum heimilisofbeldis vernd með nálgunarbanni. Rökin á bak við slíkt bann eru að gerandi á oft greiðan aðgang að þolandanum vegna náinna tengsla á milli þeirra. Ítrekaðar ofsóknir og ofbeldi eru nefnilega ein helsta birtingarmynd heimilisofbeldis, en það vill gjarnan stigmagnast.Árangursríkt verkefni Lögreglan á Suðurnesjum og félagsþjónustan hafa staðið fyrir tilraunaverkefninu „Að halda glugganum opnum“ og hefur það skilað miklum árangri. Tilgangur þess er að sporna gegn heimilisofbeldi með því að grípa strax inn í þau mál sem koma upp og freista þess að veita þolandanum þá aðstoð sem hægt er. Vandamálið er hins vegar að kerfið hefur ekki boðið upp á fullnægjandi úrræði til að fylgja þessum málum eftir. Það er ekki nóg að koma þolanda undir læknishendur og setja á nálgunarbann ef frekari úrræði eru ekki fyrir hendi. Til að bæta úr höfum við ákveðið að leggja fram frumvarp á fyrstu dögum þingsins þar sem lögð er til breyting á almennum hegningarlögum. Þar er gert ráð fyrir sérstöku ákvæði um heimilisofbeldi til að leggja áherslu á alvarleika slíkra brota. Mikilvæg breyting er líka lögð til varðandi nálgunarbann. Í dag getur bara þolandi kært brot á nálgunarbanni, en við leggjum til að lögregla fái einnig slíka heimild. Það mun styrkja stöðu þolenda, sem eru oft viðkvæmir og sýna einkenni meðvirkni þegar kemur að kæru. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, nýskipaður lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, hefur tilkynnt að baráttan gegn heimilisofbeldi verði sett í forgang á næstunni. Það er vel. Vonandi verður innlegg okkar í þá baráttu til góðs. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 19.10.24 Halldór Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við. Ágústa Árnadóttir Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir Skoðun Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir Skoðun Goðsögnin um að fara áfram Matthildur Björnsdóttir Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun Kennarastarfið Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir Skoðun Að halda niðri launum og lifa á loftinu Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Vá! Benedikta Guðrún Svavarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sögur ísraelska hermannsins Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Að taka réttindi af einum til að selja öðrum Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Kæru vinir og stuðningsfólk Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Goðsögnin um að fara áfram Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Ekki lofa einhverju sem þú ætlar ekki að standa við. Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar Skoðun Kennarastarfið Ragnheiður Lilja Bjarnadóttir skrifar Skoðun Fullveldi Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Að halda niðri launum og lifa á loftinu Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Vá! Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar Skoðun „Hver sagði þér að heimurinn væri réttlátur?“ Davíð Bergmann skrifar Skoðun Ert þú ég eða verð ég þú Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar Skoðun Ákall um annars konar hagkerfi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Lögbrot íslenskrar stjórnsýslu og dómstóla Huginn Þór Grétarsson skrifar Skoðun Háskóli Íslands styður þjóðarmorð Elí Hörpu og Önundarbur skrifar Skoðun Stjórnvöld bregðist við eggjaskorti með afnámi tolla Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Í hvernig samfélagi viljum við búa í? Ólafur H. Ólafsson skrifar Skoðun Endurhugsum íslenskt skólakerfi: Ný sýn á nám og kennslu Inga Sigrún Atladóttir skrifar Skoðun Þankar um framtíð landsins okkar Árný Björg Blandon skrifar Skoðun Er Landsvirkjun til sölu? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Þegar pólitík hindrar framför Hjörtur Sveinsson skrifar Skoðun Nú á lýðræðið næsta leik Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Fær þitt barn kennslu í fjármálalæsi? Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Dagur í grunnskóla Hulda María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Áskorun - Þingmenn, sýnið kjósendum stórhug skrifar Skoðun TikTok, upplýsingaóreiða og stjórnvöld Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Taktu þátt í lýðræðinu með okkur Þórhildur Sunna Ævarsdóttir skrifar Sjá meira
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun
Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun
Skoðun Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Yfirlýsing kennara eftir fund með borgarstjóra Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon skrifar
Skoðun Skólinn, sem við kjósum að muna. Samfélagsrýni með rjómabragði Ragnar Þór Pétursson skrifar
Óásættanleg staða fyrir fimleikadeild Keflavíkur: Loforð svikin og framtíð starfseminnar í hættu Berglind Ragnarsdóttir Skoðun
Hið rándýra bil milli borgar og byggðar - lygileg sjúkrasaga úr sveitinni Jakob Frímann Magnússon Skoðun