Lífið

Selja fisk sem er jafn ólekker og þær

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Ætli þær spyrji hvort viðskiptavinir vilji sósu?
Ætli þær spyrji hvort viðskiptavinir vilji sósu? Myndir/Kristinn Magnússon
„Við vorum ofsalega glaðar þegar haft var samband við okkur nokkrar í febrúar. Þá var orðið ljóst að Stöð 2 og Sagafilm vildu hrinda þessu af stað aftur. Fólkið sem stendur á bak við seríuna er alveg frábært og nýir, stórkostlegir leikarar búnir að bætast við í leikarahópinn,“ segir leikkonan og leikstjórinn Brynhildur Guðjónsdóttir. Hún skrifar handrit að nýjustu seríu af Stelpunum, sem frumsýnd verður á Stöð 2 á laugardagskvöldið, ásamt Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur, Ilmi Kristjánsdóttur, Maríu Reyndal og Maríönnu Clöru Lúthersdóttur.

Vísir fékk að birta nokkrar myndir úr tökunum af senu sem tekin er í fiskbúð.

„Þetta eru þær Gobba og Lalla. Þær unnu áður í mötuneyti og spurðu alltaf: Viltu sósu? Nú eru þær hættar að þjóna í ríkisreknu mötuneyti og komnar með eigin bisness, fiskbúð,“ segir Brynhildur sem leikur annan hluta tvíeykisins á móti Guðlaugu Elísabetu Ólafsdóttur. Aðspurð um hvers konar fiskmeti þær selja er Brynhildur afar dul.

Brynhildur fer á kostum í fiskbúðinni.
„Það mun koma í ljós hvers konar fiskur þetta er en við skulum segja að hann sé jafn ólekker og þær,“ segir Brynhildur hlæjandi.

Óskar Jónasson leikstýrir seríunni en margir hafa beðið með mikilli eftirvæntingu eftir nýjum Stelpum.

„Þetta eru sömu bullhausarnir sem búa þetta til en eru jafnframt búnir að sjá meira í millitíðinni og hafa víðari skírskotanir og betri tengingar í lífið. Það var mjög gaman að fara á þennan stað aftur. Gömlu þættirnir eldast svakalega vel að mínu mati og það er breiður hópur áhorfenda sem hefur áhuga á þessu. Börn geta alveg horft á þetta og upplifað grínið, kannski á aðeins annan hátt. Eldra fólki finnst þetta líka skemmtilegt. Það er svo ótrúlega gott að fá að hlæja dálítið og hlæja á fallegan hátt. Þetta er allt saman grín sem kemur frá góðum stað í sálu höfunda,“ segir Brynhildur.

Þorsteinn Bachmann leikur viðskiptavin fiskbúðarinnar sem líst ekki á fiskmetisframboðið.
Óskar Jónasson og Besti tökumaður í hláturskasti yfir Gobbu og Löllu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×