Lífið

Frægustu vinkonur heims snúa aftur?

Sarah Jessica Parker, Kim Catrall, Cynthia Nixon og Kristin Davis.
Sarah Jessica Parker, Kim Catrall, Cynthia Nixon og Kristin Davis. Vísir/Getty
Fjögur ár eru síðan vinkonurnar Carrie, Samantha, Charlotte og Miranda birtust síðast á hvíta tjaldinu. Síðan þá hafa sögusagnir um þriðju myndina skotið reglulega upp kollinum, en um helgina fengu þær byr undir báða vængi.

Leik- og söngkonan Jennifer Hudson gaf í skyn í viðtali fyrir helgi að myndin væri í bígerð, en hún fór með hlutverk aðstoðarkonu Carrie í fyrstu myndinni. Sagði hún að fyrst byrjað væri að tala um myndina yrði hún líklegast að veruleika. Tvær af aðalleikkonum myndarinnar, þær Sarah Jessica Parker og Kristin Davis, æstu enn meir upp í sögusögnunum á föstudag, þegar þær sendu skilaboð sín á milli á Twitter, þar sem Parker spurði Davis hvort hún hefði heyrt góðu fréttirnar.

Ekkert hefur þó enn verið staðfest, svo aðdáendur myndarinnar verða að bíða spenntir enn um sinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×