Lífið

Fólk fer glatt út og þá er tilganginum náð

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Guðmunda hóaði sönghópnum heim til sín til æfinga fyrir Alzheimerkaffið. Hún er fremst fyrir miðju með hinar umsjónarkonurnar, Kolbrúnu Sigurpálsdóttur og Pálínu Skjaldardóttur, hvora á sína hönd.Fréttablaðið/Vilhelm
„Við erum hluti af sönghópi sem var stofnaður í Eyjum á sínum tíma til að syngja lög við ljóð Jónasar Árnasonar. Nýlega sá ég þátt um Jónas í sjónvarpinu og datt þá í hug að reyna að dusta rykið af þessum hópi og fá hann til að syngja á Alzheimerkaffi, bæði sérstaka efnisskrá og með gestum,“ segir Guðmunda Steingrímsdóttir sjúkraliði brosandi, um hóp sem er staddur heima hjá henni þá stundina.

Guðmunda er ein þriggja kvenna sem stofnuðu Alzheimerkaffi í félagsmiðstöðinni í Hæðargarði í Reykjavík í ársbyrjun 2013 sem tilraunaverkefni til tveggja ára og telur það hafa tekist vel.

„Við erum þrjár sem höldum utan um verkefnið en fjölmargir hafa lagt okkur lið. Eiginmenn okkar, fjölskyldur og tvær konur hafa verið með okkur allan tímann og fleiri eru á hliðarlínunni, fyrirtæki hafa stutt okkur með veitingum og fyrirlesarar og skemmtikraftar hafa flestir komið fram endurgjaldslaust. Þetta er allt ómetanlegt.“

Oftast mæta um þrjátíu manns í kaffið, mest fastur kjarni. Fólk með minnissjúkdóma er aðalgestirnir, ættingjar þeirra fylgja með og einnig kemur fólk sem hefur áhuga á viðfangsefninu. Fræðsla í léttari kantinum er jafnan á dagskrá og stundum koma skemmtikraftar, að sögn Guðmundu.

„Við höfum fengið lækni, sálfræðing, sjúkraþjálfara, iðjuþjálfa, uppistandara og ljóðahóp, svo nokkuð sé nefnt. Einn maður með Alzheimergreiningu hefur haldið erindi um hvernig hann tæklar lífið, það var lærdómsríkt.



Aðalheiður Þorsteinsdóttir píanóleikari spilar oftast fyrir okkur, sem er dýrmætt og það er orðinn til lítill kór sem stendur við píanóið þegar kemur að söngstundinni í lokin. Stundum fær fólk sér líka snúning. Við sjáum að fólk fer mjög glatt út og þá er tilganginum náð.“

Alzheimerkaffið er annan hvern fimmtudag milli klukkan 17 og 19. Slíkur dagur er í dag. Aðgangur kostar 500 krónur og innifalin er fræðsla, skemmtun, kaffi og meðlæti.

Hvort framhald verður á starfseminni eftir áramótin veit Guðmunda ekki á þessari stundu en hún vonar það.

„Fólkið sem mætir þarf á þessari upplyftingu að halda. En þó við höfum fengið smá styrki og notið stuðnings á margan hátt erum við allar að vinna þetta verkefni í sjálfboðavinnu, ég veit ekki hvort við getum haldið því áfram þannig mikið lengur.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×