Bíó og sjónvarp

Bryan Cranston leikur spæjara

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Bryan Cranston
Bryan Cranston
Breaking Bad-stjarnan Bryan Cranston leikur aðalhlutverkið í nýjum spennutrylli, The Infiltrator. Leikstjóri The Lincoln Lawyer, Brad Furman, leikstýrir en þeir tveir urðu góðir vinir við tökur á Lincoln Lawyer.

Myndin er sakamálatryllir byggð á sjálfsævisögu Roberts Mazur. Cranston mun leika tollvörðinn Mazur sem hafði einnig dulnefnið Bob Musella og laumaði sér í raðir eiturlyfjabaróna Kólumbíu.

Tökur hefjast í janúar á næsta ári í Lundúnum, París og Flórída.

Myndin er fyrsta mynd útgáfufyrirtækisins Good Films en í fréttatilkynningu kemur fram að fyrirtækið muni einsetja sér að framleiða „gáfulegar, skrautlegar, frumlegar og einlægar myndir“.

Fyrirtækið mun leggja áherslu á sögur sem eru „áhugaverðar fyrir fólk hvaðanæva úr heiminum“. Meðal þeirra sem fyrirtækið mun vinna með eru rithöfundarnir James Patterson og Liza Marklund en leikstjórinn Everado Gout mun sjá um að gera mynd eftir bók þeirra The Postcard Killers.

Aðrar kvikmyndir sem eru í vinnslu hjá Good Films eru Invisible, byggð á verki eftir leikritaskáldið Tena Stivicic, When a Crocodile Eats the Sun, eftir bók blaðamannsins Peters Godwin, What I Love, eftir bók Siri Hustvedt, og Labyrinth, eftir bók Rolling Stone-blaðamannsins Randalls Sullivan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.