Lífið

„Hún elskar enn þá að skamma mig“

Simon segir mömmu sína enn skamma sig.
Simon segir mömmu sína enn skamma sig. Mynd/Getty
Stjörnudómarinn Simon Cowell hefur verið þekktur fyrir að vera óhræddur við að tjá skoðanir sínar í gegnum tíðina og ekki endilega látið skammir annarra á sig fá.

Það er þó ein manneskja sem hann hlustar alltaf á og hlýðir, sú er móðir hans, hin 88 ára gamla Julie Cowell. Hann segir atvik frá unglingsárunum enn sitja í honum.

Þegar Simon var 15 ára sagði mamma hans fyrir framan kærustuna hans að hann ætti að hætta að vera alltaf að sýna sig. „Ég gat ekki svarað henni,“ segir hann í viðtali á útvarpsstöðinni BBC 1.

„Það versta sem hún getur sagt við mig er að ég eigi að hætta að sýna mig þegar ég er með vini í kringum mig,“ sagði Simon einnig og bætti við hlæjandi: „Hún elskar enn þá að skamma mig.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×