Lífið

Dýrustu miðar á nær 40 þúsund

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Gítarleikarinn Slash heldur tónleika hér í desember.
Gítarleikarinn Slash heldur tónleika hér í desember. NordicPhotos/Getty
Sala á miðum á tónleika Slash hófst í vikunni. Miðarnir eru í þremur verðflokkum, 9.990, 13.990 og 38.990 krónur.

Tónleikarnir fara fram í Laugardalshöllinni þann 6. desember en Slash kemur fram með söngvaranum Myles Kennedy og hljómsveitinni The Conspirators.

Guðbjartur Finnbjörnsson, sem stendur að tónleikunum, segir að það séu ekki margir miðar í boði á 38.990 krónur. Það séu einungis VIP-miðar. „Það er svona um helmingur þeirra farinn,“ segir hann spurður um málið. Hann segist ekki vilja greina frá því hve margir miðar í heild eru farnir. „En salan gengur ágætlega,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×