Lífið

North West komin með stílista

Flott á því 
Fjölskyldan vill vera í stíl. 
myndir/Getty
Flott á því Fjölskyldan vill vera í stíl. myndir/Getty Vísir/Getty
Kim Kardashian hefur ráðið klæðskera og stílista fyrir 15 mánaða gamla dóttur þeirra Kanye West, North West.

Kim vill að North sé klædd í föt sem passi við það sem hún klæðist sjálf og mæðgurnar séu þannig í stíl. Til þess að þetta gangi upp hefur Kim ráðið til sín nýja aðstoðarmanneskju sem vinnur náið með aðstoðarfólki þeirra hjóna að því að passa upp á að þau séu öll klædd í stíl.

Stílistinn á að plana föt stjarnanna fram í tímann þannig að ekkert smáatriði klikki þegar þau fara á opinbera viðburði. Kim og Kanye eru með fjölmarga aðstoðarmenn á sínum snærum enda að ýmsu að huga.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×