Lífið

Elskar glingur og liti

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Arna Sigurlaug Ragnarsdóttir
Arna Sigurlaug Ragnarsdóttir Vísir/Ernir
Arna Sigurlaug Ragnarsdóttir, förðunarfræðingur og sölustjóri hjá SMASHBOX COSMETICS á Íslandi opnaði fataskápinn sinn þessa vikuna.

„Fatastíllinn minn er frekar klassískur, en ég er bundin því að vera svartklædd þegar ég er að vinna, svo mér finnst oft gaman að setja smá lit með í klæðnaðinn þegar ég er ekki í vinnunni,“ segir Arna.

Hún segist versla bæði heima og erlendis og er uppáhaldsbúðin hennar Moss Copenhagen í Danmörku.

„Ég get verið mikil glingurmanneskja og finnst alltaf gaman að finna mér nýja skartgripi. Það eru nokkrir sem hafa fylgt mér í nokkur ár og ég fer helst ekki út úr húsinu án þeirra. Allir eru þeir hver úr sinni áttinni, en mér finnst gaman að blanda saman ólíkum stílum.“

Uppáhaldsjakkinn minn er úr Vero Moda og er með þeim nýjustu í fataskápnum mínum – finnst hann mjög töff og hann passar við nánast allt sem ég á.
Annar uppáhaldsjakki er hvítur blazer úr HM. Hann sker sig vel úr í fataskápnum mínum þar sem ég á ekki margar hvítar flíkur, en var vel notaður í sumar og verður pottþétt uppáhalds áfram í vetur.
Feldirnir mínir eru alltaf klassískir og ég get notað þá með flestu til að poppa aðeins upp stílinn. Á einn sem er hægt er að festa við hettuvesti og ég nota yfir boli eða undir jakka hvenær sem er ásamt öðrum grásilfruðum sem ég nota við hvað sem er. Mamma mín gaf mér þessa fyrir nokkrum árum og mér þykir alltaf rosalega vænt um þá.
Þetta armband er frá Alex and Ani sem foreldrar mínir gáfu mér í jólagjöf, hringur sem systir mín gaf mér fyrir mörgum árum (man ekki hvaðan hann er), armbönd frá Hendrikku Waage og hringur frá Sif Jakobs.
Keypti mér þessa skó í sumar, einmitt í uppáhaldsbúðinni, Moss Copenhagen, og ég elska þá og nota við fínni tækifæri.
Vagabond er eitt uppáhaldsskómerkið mitt. Þessa skó nota ég nánast daglega.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×