Lífið

Vill einhvern til að horfa á sjónvarpið með

Jennifer Lawrence vill einhvern sem deilir með henni smekk á raunveruleikasjónvarp.
Jennifer Lawrence vill einhvern sem deilir með henni smekk á raunveruleikasjónvarp. Vísir/Getty
Jennifer Lawrence er að leita sér að manni og segir að það eina sem hún þurfi sé einhver til að horfa á sjónvarpið með. Í viðtali við tímaritið Vanity Fair segist hún vilja vera með einhverjum sem hafi sama áhuga á raunveruleikaþáttum og hún.

„Ég væri til í að vera með einhverjum sem er með sama smekk og ég á raunveruleikasjónvarp,“ sagði hún í viðtalinu og taldi upp fjölmarga þætti sem hún hefði gaman af. „Það sem ég er að segja er eiginlega það að allt sem ég þarf í sambandi er einhver til þess að horfa á sjónvarpið með.“

Jennifer hefur verið orðuð við söngvara Coldplay, Chris Martin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×