Lífið

Vel siðuð ung kona

Miley kippir sér ekki upp við það þótt fólk haldi að hún sé klikkuð.
Miley kippir sér ekki upp við það þótt fólk haldi að hún sé klikkuð. Vísir/Pjetur
Söng- og leikkonan Miley Cyrus segist ekkert kippa sér upp við það þegar fólk segi að hún sé klikkuð. Hún veit best sjálf að hún kann allt um mannasiði þótt flestir telji hana villta.

„Það truflar mig ekkert þegar fólk segir mér að ég sé klikkuð vegna þess að ég er það,“ sagði hún í viðtali við ástralska morgunþáttinn Sunrise.

„Margar stelpur eru mjög kurteisar út á við. En þegar maður hittir þær eru þær ekki eins kurteisar og ekki eins vingjarnlegar. Ég vona að orðspor mitt sé gott. Ég heilsa öllum og kem eins fram við alla,“ sagði hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×