Lífið

Nördarnir þrír snúa aftur

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Sam, Neil og Bill
Sam, Neil og Bill
Nördavinirnir Sam, Neil og Bill sem slógu í gegn í grínþáttunum Freaks and Geeks verða sameinaðir aftur á næsta ári.

Það verður því miður ekki fyrir nýja Freaks and Geeks þáttaröð, heldur fyrir endurgerð á grínmyndinni sígildu National Lampoon‘s Vacation. Það er enginn annar en leikarinn John Francis Daley sem lék Sam sem skrifar handritið.

Aðspurður um hvort hann væri með hlutverk í myndinni sagði hann: „Ég er ekki viss um að ég geti einu sinni sagt frá því hvert hlutverk mitt í myndinni er. Ég veit ekki hvort þetta sé komið á dagana en Samm Levine og Martin Starr munu einnig vera í myndinni,“ segir Daley.

„Ég vildi einfaldlega fá tækifæri til að fá nördana þrjá (úr þáttunum) aftur saman, fyrir sama verkefnið,“ segir hann.

Þess má til gamans geta að Martin Starr var staddur hér á landi í fyrra fyrir tökur á norsku hryllingsmyndinni Død snø 2.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×