Lífið

Saga um baráttu fyrir bættum kjörum

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Leikstjórinn Saga Jónsdóttir skrifaði verkið ásamt Stefaníu E. Hallbjörnsdóttur og leikstýrir því einnig.
Leikstjórinn Saga Jónsdóttir skrifaði verkið ásamt Stefaníu E. Hallbjörnsdóttur og leikstýrir því einnig. Vísir/Aui
Leikfélag Hörgdæla frumsýnir í kvöld Verksmiðjukrónikuna, nýtt íslenskt leikrit eftir Sögu Jónsdóttur og Stefaníu Elísabetu Hallbjörnsdóttur. Í leikritinu segir frá lífi og starfi verkafólks í verksmiðjunni Gefjun á Akureyri á árunum 1940-1942. Bretarnir komu til Akureyrar, sem hafði ýmsar breytingar í för með sér og mikið var um að vera í bænum. Ungu stúlkurnar heilluðust og nýir tímar runnu upp.

„Þarna unnu um þúsund manns á sínum tíma og í verkinu fáum við að kynnast margs konar persónum sem starfa í verksmiðjunum. Það er verkfall í bígerð hjá þeim og því ýmislegt sem gengur á,“ segir Saga, en ásamt því að vera annar höfundur verksins leikstýrir hún sýningunni.

En hvernig kviknaði þessi hugmynd? „Við Stefanía vorum að vinna saman, en hún hefur leikið hjá mér áður. Ég fór að segja henni sögur og að mig langaði að gera eitthvað tengt verksmiðjunum. Í framhaldi af því fór hún að segja frá hugmynd sinni um það að gera eitthvað tengt því þegar Bretarnir komu hingað. Okkur fannst tilvalið að tengja þetta saman, þetta var svo spennandi og merkilegur tími,“ segir Saga.

Verksmiðjurnar skipta Sögu miklu máli, en faðir hennar, Jón Ingimarsson, var formaður Iðju, félags verksmiðjufólks, í áratugi en félagið var stofnað 1936. „Okkur langaði svo að sýna líf fólksins sem var að vinna þarna og baráttu þess fyrir bættum kjörum. Unga fólkið í dag skilur þetta ekki, en á þessum tíma var ávallt unnið á laugardögum og vinnutíminn mun lengri en gengur og gerist í dag,“ segir Saga. Hún segir mikið af yngra fólki á Akureyri í dag ekki vita um tilvist verksmiðjanna og hversu mikill iðnaðarbær Akureyri var.

Fjöldi leikara kemur að sýningunni og segir Saga aldurshópinn mjög dreifðan. Leikritið verður frumsýnt í kvöld á Melum í Hörgárdal. „Það er mikill kraftur í þeim og þetta verður ofsalega gaman,“ segir Saga. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×