Lífið

Walker semur kvikmyndatónlist

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Scott Walker - Gafst upp á miðjumoðinu
Scott Walker - Gafst upp á miðjumoðinu
Scott Walker, sem gerði garðinn frægan á sjöunda áratugnum með bræðrum sínum í The Walker Brothers, mun gera tónlistina fyrir kvikmyndina The Childhood of a Leader.

Myndin er fyrsta verk leikarans Bracy Corbet sem leikstjóri. Robert Pattinson úr Twilight-myndunum leikur aðalhlutverkið en Tim Roth (Reservoir Dogs) og Bérénice Bejo (The Artist) munu einnig leika hlutverk.

Walker hefur búið til afar framsækna og óvenjulega jaðartónlist á undanförnum áratugum eftir að hann gafst upp á miðjumoði. Plata hans með drunu- og hávaðasveitinni Sunn O))), Soused, kemur út í næstu viku.

The Childhood of a Leader fjallar um ungan Bandaríkjamann sem býr í Frakklandi árið 1918 en faðir hans vinnur fyrir Bandaríkjastjórn við að koma Versalasamningnum í kring. Það sem maðurinn verður vitni að mótar skoðanir hans en myndin sýnir „fæðingu hræðilegs egós“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×