Lífið

Fleiri konur leikstýra í íslensku grasrótinni

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Styttra snið sækir í sig veðrið - Dögg Mósesdóttir, stofnandi hátíðarinnar, lítur björtum augum á framtíð stuttmyndanna
Styttra snið sækir í sig veðrið - Dögg Mósesdóttir, stofnandi hátíðarinnar, lítur björtum augum á framtíð stuttmyndanna
„Það er mjög góð stemning fyrir þessu,“ segir Dögg Mósesdóttir, stofnandi kvikmyndahátíðarinnar Northern Wave sem haldin verður í sjöunda sinn á Grundarfirði um næstu helgi.

„Við höfum vanalega verið með hátíðina á þyngsta vetrartímanum, þar sem er svo snjóþungt og hvasst að gestir hafa jafnvel séð dauða fugla á veginum. En í ár verður betra og léttara veður.“

Northern Wave er alþjóðleg stuttmynda- og tónlistarmyndbandahátíð sem leggur áherslu á kynslóð nýrra leikstjóra og nýjar raddir í kvikmyndagerð.

Dögg segir að svo virðist sem það hafi verið mikil fjölgun á kvenleikstjórum undanfarið. „Stuttmyndir hafa oft gefið vísbendingar um það sem koma skal í bransanum því þetta eru oft framtíðarleikstjórarnir. Við höfum tekið eftir mikilli fjölgun kvenleikstjóra í grasrótinni. Kvenraddirnar eru svolítið nýjar raddir í bransanum því þær hafa heyrst mjög lítið. Við tökum því fagnandi.“

Að sögn Daggar er lögð áhersla á að sýna rjómann af því sem er að gerast í stuttmyndum úti í heimi. „Við sýnum líka nýjar uppgötvanir sem okkur fannst frábærar en hafa kannski ekki verið mikið á hátíðum ennþá, ásamt íslenskum stuttmyndum sem eru alltaf vinsælastar á hátíðinni,“ segir Dögg. Keppt er um verðlaun fyrir bestu íslensku stuttmyndina, besta íslenska tónlistarmyndbandið og bestu alþjóðlegu stuttmyndina.“

„Ég held að vinsældir stuttmynda og tónlistarmyndbanda séu að aukast. Þegar við vorum að byrja héldu allir að tónlistarmyndbönd væru að deyja út. Þau hafa aftur á móti aldeilis sótt í sig veðrið. Ég held að það sama geti gerst með stuttmyndirnar. Við erum orðin svo YouTube-vædd að við erum farin að fíla miklu betur styttri snið. Ég held að stuttmyndaformið eigi framtíðina fyrir sér,“ segir Dögg en lögð er áhersla á allar helstu tegundir stuttmynda.

Boðið er upp á fleiri viðburði á hátíðinni svo sem fiskréttakeppni og tónleika með Boogie Trouble, Sesari A og Diablo Quintet, með Einari Melax úr Sykurmolunum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×