Leitin skilar litlum árangri Guðsteinn Bjarnason skrifar 21. október 2014 07:00 Sænski herinn hefur síðan á föstudag staðið í umfangsmiklum leitaraðgerðum. fréttablaðið/AP
Stemningin í sænska skerjagarðinum undanfarna daga þykir helst minna á kaldastríðsárin, þar sem sænski herinn hefur notað herskip, þyrlur og leitarflokka gangandi hermanna í von um að finna dularfullt neðansjávarfarartæki, sem grunur leikur á að leynist þar. Síðan á föstudag hafa fjórum sinnum borist frásagnir af því að fólk hafi séð til torkennilegs hlutar sem gæti verið kafbátur. Og hugsanlega þá rússneskur. Eða ekki. Eitt vitni lýsir hlutnum þannig að hann hafi færst til í sömu stefnu með nokkrum hraða og sá hinn sami sagði greinilegt að þarna væri kafbátur á ferðinni. Rússar segjast þó ekkert kannast við gripinn og benda Svíum á að spyrja Hollendinga, en í síðustu viku tóku Hollendingar þátt í heræfingum á þessum slóðum og voru þá sannarlega með kafbát með sér. Sænsk stjórnvöld segjast þó fullviss um að Hollendingar hafi ekkert með málið að gera. Þetta sé ekki kafbáturinn þeirra, sem þarna sé kominn, enda hafi Hollendingar tekið hann með sér strax á þriðjudaginn. Hann hafi verið í Eistlandi frá því á föstudaginn. Árið 1981 strandaði rússneskur kjarnorkukafbátur út af suðurströnd Svíþjóðar og á tímabili bárust fjölmargar fregnir af því að dularfull farartæki væru á ferðinni í skerjagarðinum. Sænski herinn leitaði þá ákaft og notaði djúpsjávarsprengjur og önnur vopn sem áttu að geta grandað kafbátum. Aldrei kom þó í ljós hvað þar var á ferðinni. Í þetta skipti hafa engin vopn verið notuð. Meira en 200 manns hafa hins vegar tekið þátt í leitinni. Fréttirnar af leitinni hafa farið hátt í fjölmiðlum, bæði í Svíþjóð sjálfri og í öðrum ríkjum við Eystrasaltið, og líst meðal annars íbúum Eistlands, Lettlands og Litháens ekkert á blikuna. Í rússneska dagblaðinu Rossiskaja Gazeta er hins vegar mikið gert úr því að ekkert hafi fundist: „Annaðhvort virkar sænski bergmálsleitarbúnaðurinn ekki vel eða þá, eins og orðtakið segir, að augu óttans sjá hættur alls staðar,“ segir í blaðinu.
Mest lesið Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Innlent Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Erlent Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið Innlent „Hann hverfur ofan í jörðina“ Innlent Öflugur skjálfti í Bárðarbunguöskju Innlent Segir rangt að þau hafi reynt að stöðva lögreglubíl í forgangsakstri Innlent Íslensk flugáhöfn horfði á ljónaárás rétt við hótelið Innlent Af hverju er barnið mitt alltaf að segja Skibidi toilet? Innlent Fleiri fréttir Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Slökkva á tækjum næstvíðförlasta geimfarsins til að lengja líf þess Lét sér fátt um finnast að Pence væri í hættu Forsetinn neitar að undirrita lög gegn hinsegin fólki Tekur einarða afstöðu með þungunarrofi og sjálfræði kvenna Sjá meira