Menning

Hátíð þegar allir fimm koma saman

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Secret Swing Society. Sveitin varð til þegar allir félagar hennar stunduðu tónlistarnám í Amsterdam.
Secret Swing Society. Sveitin varð til þegar allir félagar hennar stunduðu tónlistarnám í Amsterdam. Mynd úr einkasafni
Secret Swing Society er band sem við stofnuðum í Amsterdam árið 2010 þegar við vorum allir þar í námi,“ segir Andri Ólafsson, kontrabassaleikari hljómsveitarinnar Secret Swing Society sem heldur tónleika í Bæjarbíói í Hafnarfirði annað kvöld. „Bandið er skipað þremur Íslendingum, einum Frakka og einum Litháa. Tveir okkar búa ennþá í Amsterdam en við hinir erum fluttir til okkar heimalanda þannig að það er hátíð þegar við hittumst allir fimm til að spila saman.“



Auk Andra er hljómsveitin skipuð þeim Grími Helgasyni klarinettleikara, Guillaume Heurtebize gítarleikara, Dominykas Vysniauskas trompetleikara og Kristjáni Tryggva Martinssyni, sem leikur á píanó og harmónikku. Þeir leika og syngja gamaldags sveiflutónlist, frumsamda og ættaða frá höfundum og flytjendum á borð við Duke Ellington, Gershwin-bræðrum, Louis Armstrong, The Mills Brothers, Louis Prima, Django Reinhardt og Fats Waller.



Secret Swing Society hefur spilað mikið úti á götum, mörkuðum og síkjum Amsterdam en einnig hefur hún ferðast til fleiri borga í Hollandi, Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Litháen og á austurströnd Bandaríkjanna, ýmist til að spila á djasshátíðum, tónleikum eða úti á götum. Hafa þeir ekkert reynt að spila á götum úti á Íslandi? „Okkur finnst reyndar skemmtilegast að spila á götum úti og höfum gert það tvisvar í Reykjavík,“ segir Andri. „Það gekk alveg ágætlega en það var rigning og ekkert rífandi stemning. Ef við værum meira á Íslandi myndum við samt örugglega nota hvert tækifæri til þess að gleðja landann með spilamennsku úti á götum, verst bara hvað veðrið býður sjaldan upp á það.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.