Lífið

Jólalögin í spilun í dag

Freyr Bjarnason skrifar
Létt Bylgjan er byrjuð að spila jólalögin, 47 dögum fyrir jól.
Létt Bylgjan er byrjuð að spila jólalögin, 47 dögum fyrir jól. Nordicphotos/Getty
Nú þegar 47 dagar eru til jóla eru fyrstu jólalög Létt Bylgjunnar farin að hljóma á stöðinni. Mörg undanfarin ár hefur Létt Bylgjan verið fyrst útvarpsstöðva til að spila jólalögin og árið í ár er engin undantekning.

„Það eru þó nokkrar vikur frá því að okkur fór að berast tölvupóstur og skilaboð í gegnum Facebook-síðu Létt Bylgjunnar þar sem fólk var að spyrja hvenær jólalögin færu í loftið,“ segir Jóhann K. Jóhannsson, dagskrárgerðarmaður á Létt Bylgjunni.

„Okkur fannst réttur tími að gera það í dag enda margar verslanir og sum heimili farin að skreyta fyrir jólin."

Hægt er að hlusta á LéttBylguna hér í vefspilara Vísis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×