Tónlist

Spila á 38 hljóðfæri

Freyr Bjarnason skrifar
Tónleikarnir Tubular Bells fyrir tvo verða haldnir í Háskólabíói 21. janúar.

Þar spila Ástralarnir Aidan Roberts og Daniel Holdsworth lög af frægri plötu Mikes Oldfield, Tubular Bells, og verða aðeins tveir á sviðinu. Hljóðfærin verða aftur á móti 38 talsins. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni 40 ára afmælis plötunnar, sem var í fyrra.

„Það er svolítið spennandi að sjá hvort þeir nái næsta hljóðfæri. Það er hluti af þessu,“ segir tónleikahaldarinn Guðbjartur Finnbjörnsson. „Eins og þeir segja: „Ein plata, allt of mörg hljóðfæri“. Þetta er sýning í leiðinni.“

Tubular Bells kom út árið 1973 og er fyrsta plata enska tónlistarmannsins Mikes Oldfield. Platan sat á breska vinsældalistanum í 279 vikur samfleytt og er sú fyrsta sem Virgin Records, fyrirtæki auðjöfursins Richards Branson, gaf út.

„Mike Oldfield var átján ára þegar hann ætlaði að selja þessa hugmynd um að gefa út þessa plötu og spila á öll hljóðfærin sjálfur. Enginn leit við honum þangað til ungur strákur á svipuðum aldri ákvað að taka verkefnið að sér. Þessi plata lagði grunninn að veldi Bransons því hún seldist svo rosalega,“ segir Guðbjartur.

Roberts og Holdsworth hafa hlotið mikið lof fyrir tónleika sína úti um allan heim. Þeir eru á sinni fyrstu tónleikaferð um Bandaríkin og munu ljúka ferðalaginu hér á landi. Miðasala hefst næstkomandi fimmtudag á Midi.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.