Bíó og sjónvarp

Tilkynnt um Bond á morgun

Daniel Craig Craig mun áfram leika njósnara hennar hátignar, 007.
Daniel Craig Craig mun áfram leika njósnara hennar hátignar, 007. Vísir/Getty
Tilkynnt verður í beinni útsendingu á morgun hver titill nýju James Bond-myndarinnar verður og hvaða leikarar fara með helstu hlutverkin.

Athöfnin fer fram í Pinewood-kvikmyndaverinu og verður hægt að fylgjast með henni á 007.com þar sem allar stjörnurnar verða á staðnum.

Tökur á myndinni hefjast næstkomandi mánudag og verða þær líkast til í Obertilliach í Austurríki, Róm og Marokkó.

Talið er að Lea Seydoux verði nýjasta Bond-stúlkan og að hinn tvöfaldi Óskarsverðlaunahafi Christoph Waltz leiki aðal illmennið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×