Tónlist

Innblástur frá New York

Tónlistarkonunni líkaði lífið vel í New York.
Tónlistarkonunni líkaði lífið vel í New York. Vísir/Getty
Lana Del Rey segir að borgin New York hafi veitt sér óhemju mikinn innblástur þegar hún bjó þar.

Söngkonan bjó þar í átta ár og líkaði lífið vel. „Ég elskaði New York. Þegar ég bjó þar var borgin aðalinnblástur minn, meiri en nokkur maður, rithöfundur eða rappari. En það er erfiðara núna fyrir mig að ganga um göturnar,“ sagði Rey.

Söngkonan 29 ára er þessa dagana að vinna á fullu við að semja nýja tónlist. Nýlega samdi hún tvö lög fyrir nýjustu mynd Tims Burton, Big Eyes, auk þess sem hún er að undirbúa nýja sólóplötu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.