Lífið

Blaz bræðir snjó af götum borgarinnar

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Erpur Eyvindsson Blaz Roca tekur upp myndband um helgina.
Erpur Eyvindsson Blaz Roca tekur upp myndband um helgina. Vísir/Stefán
Erpur Eyvindarson eða Blaz Roca á í nógu að snúast um helgina en hann er að taka upp myndband við nýtt lag. „Þetta er bara geðveiki, kostnaðurinn er ein til tvær milljónir. Dýrasta myndband sem ég hef gert,“ segir Erpur.

Margir koma að myndbandinu og þá hefur Erpur einnig látið bræða snjó í þekktri götu í Reykjavík fyrir myndbandagerðina. „Sævar Guðmundsson skýtur myndbandið og Eiður Birgisson leikstýrir því, þetta eru fagmenn."

„Við erum að fara nota Cadillac Eldorado 74 módel, með blæju og allan pakkann. Þetta verður geggjað myndband við vangefið lag.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.