Menning

Háklassíkin við völd

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 Kammersveit Reykjavíkur kemur fagurri músík til skila á faglegan hátt.
Kammersveit Reykjavíkur kemur fagurri músík til skila á faglegan hátt. Vísir/Ernir
Við erum með barokkverk á jólatónleikunum að vanda,“ segir Rut Ingólfsdóttir, fiðluleikari í Kammersveit Reykjavíkur, og nefnir konserta eftir Wassenaer, Wagenseil og Vivaldi.

„Tónlist Wassenaer er bæði áferðarfalleg og ljúf og minnir um margt á ýmis verka Händels,“ segir hún og heldur áfram að lýsa dagskránni.

„Konsertinn eftir Wagenseil er einungis í tveimur köflum en ekki í hefðbundnum þremur. Fyrri kaflinn er hægur og syngjandi en seinni kaflinn hraður og fjörugur. Svo eru þrír konsertar eftir Vivaldi. Einn þeirra er flautukonsertinn La tempesta di mare eða Sjóstormurinn.“

Kammersveitin er að hefja sitt 41. starfsár.

„Við höfum alla tíð lagt áherslu á að bjóða ungu og framúrskarandi tónlistarfólki, sem nýlega er komið heim frá námi, að leika einleik á tónleikum sveitarinnar. Á því er engin breyting nú,“ segir Rut.

Í þetta sinn eru það flautuleikarinn Hafdís Vigfúsdóttir, básúnuleikarinn Carlos Caro Aguilera og fiðluleikararnir Joaquin Páll Palomares, Una Sveinbjarnardóttir, Helga Þóra Björgvinsdóttir og Gunnhildur Daðadóttir sem sjá um einleikinn.

Tónleikarnir eru í Norðurljósasal Hörpu 7. desember og hefjast klukkan 17.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×