Tónlist

Diddy & Drake í slagsmálum

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Drake og Diddy þegar allt lék í lyndi.
Drake og Diddy þegar allt lék í lyndi. nordicphotos/getty
Röppurunum Sean „Diddy“ Combs og Drake lenti saman fyrir utan næturklúbb í Miami á Art Basel-listahátíðinni á sunnudagsnótt. Endaði það með því að Drake fór á spítala eftir að hafa slasað sig í öxlinni.

Ekki liggur nákvæmlega fyrir hver ástæðan var fyrir útistöðunum en samkvæmt grein slúðursíðunnar Page Six lenti þeim saman eftir að hafa rifist um höfundarréttinn á einhverju ákveðnu lagi. Heimildir Daily News segja hins vegar að Diddy hafi kýlt Drake í andlitið fyrir að misbjóða kærustu sinni, Cassie.

„Drake og Diddy fóru að rífast fyrir utan klúbbinn og lentu í slagsmálum,“ segir eitt vitnið í grein Page Six en afmælisveisla tónlistarmannsins DJ Khaled var í fullu fjöri inni í klúbbnum þegar þetta á að hafa gerst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.