Lífið

Mundi og vinir vinna í tölvuleik

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið Klang sem staðsett er í Berlín vinnur nú í tölvuleiknum ReRunners. Klang var stofnað af Oddi Snæ Magnússyni ásamt félögum sínum Ívari Emilssyni og fatahönnuðinum Guðmundi Hallgrímssyni, betur þekktur sem Munda Vonda.

Í ReRunner geturðu keppt við vini þína en heimurinn er svokallaður „open world“ leikur, þar sem leikmenn geta ráfað frjálsir um heiminn sem leikurinn gerist í.

„Leikmaðurinn þarf að sigra keppnir og vinna inn fúlgur til að fjármagna leiðina áfram, yfir eyðimerkur og höf, út í geim og lengra,“ segir á Facebook-síðu leikjarins. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.