Tónlist

Megas og vinir flytja hinar umdeildu Jesúrímur

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Hörður Bragason, organisti segir rímurnar þykja enn ófínar á köflum.
Hörður Bragason, organisti segir rímurnar þykja enn ófínar á köflum. Vísir/pjetur
Megas og Sauðrekarnir flytja Jesúrímur eftir Tryggva Magnússon, teiknara og myndlistarmann, ásamt Ágústu Evu Erlendsdóttir á Kexi Hosteli á föstudaginn. „Megas samdi tónlistina við Jesúrímur árið 1973,“ segir Hörður Bragason organisti sem leiðir Sauðrekana.

„Tryggvi skrifaði rímurnar upp á sínum tíma með gömlu bleki á gamlan pappír og þóttist hafa fundið þetta í fórum gamallar konu. Hann kom þessu til Þjóðminjasafnsins og reyndi að halda því fram að þetta væri fleiri hundruð ára gamalt. Þjóðminjavörður sá reyndar í gegnum þetta.“

Megas samdi tónlist við rímurnar á sínum tíma.Vísir/valli
Hörður segir vísurnar hafa verið umdeildar á sínum tíma. „Sumum þykja þær enn þá pínulítið ófínar og allt að því dónalegar á köflum, en þetta er mjög skemmtilegur skáldskapur í gömlum rímnastíl,“ segir hann, en þær hafa aldrei verið gefnar út opinberlega. 

„Megas eignaði sér þær í ljósriti frá Helga Hóseassyni, sem hafði eignast þær einhvern veginn og dreift í takmörkuðu upplagi. Þetta var költ,“ segir Hörður en Megas samdi tónlist við rímurnar á áttunda áratugnum. Hann hefur flutt rímurnar með Sauðrekunum tvisvar áður en á föstudag verður fluttur sá hluti rímnanna sem fjallar um fæðingu frelsarans í bland við gömul og ný jólalög.-






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.