Tilkynnt var um söluna 25. nóvember síðastliðinn, en 2.184 milljónir króna fengust fyrir 31,2 prósenta eignarhlut bankans í Borgun. Hluturinn var hvorki auglýstur til sölu, né var söluferlið opið. Stjórnmálamenn gagnrýndu vinnulagið og Steinþór Pálsson bankastjóri var í kjölfarið kallaður fyrir efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis þar sem hann varði söluna og kvað ásættanlegt verð hafa fengist fyrir hlutinn. Hagnaður bankans af sölunni nam tæpum milljarði króna.
Í umræðu og fréttaflutningi af sölunni voru gerðar athugasemdir við að í hópi kaupenda eru fjárfestar tengdir Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra fjölskylduböndum, feðgarnir Einar Sveinsson og Benedikt Einarsson. Einar er föðurbróðir Bjarna.

„Á tyllidögum segja stjórnendur ríkisbankans að þeir vilji vera í fararbroddi hvað varðar ábyrgar fjárfestingar á Íslandi. Ógegnsætt söluferli á greiðslumiðlunarfyrirtækinu Borgun hefur hins vegar valdið bankanum orðsporshnekki, meðal annars vegna þess að allsendis er óvíst hvort bankanum hafi tekist að hámarka verðmæti eignarhlutar síns,“ segir einn dómnefndarmaður í umsögn sinni og bendir á að bankarnir hafi ekki verið þekktir fyrir að selja eignir lágt á undanförnum árum, jafnvel þótt þeir hafi verið undir þrýstingi Samkeppniseftirlitsins um að losa eignir. „Því kemur þessi leyndarhyggja Landsbankans á óvart.“
Dómnefndarfólk var ekki einhuga í mati sínu á ástæðum þess að viðskiptin hafi verið slæm. Þannig töldu sumir verðið hafa verið ásættanlegt en aðrir of lágt. Allir voru þó sammála um að bankinn hefði orðið illa úti í umræðunni eftir viðskiptin.

Annar sagði hafa verið erfitt að finna verstu viðskiptin að þessu sinni.
„En leiðinlegustu viðskiptin eru örugglega sala Landsbankans á hlut sínum í Borgun, stjórnmálamenn og vissir fjölmiðlar hafa reynt að gera þetta tortryggilegt og málið verið blásið út. Landsbankinn fékk gott verð fyrir hlutinn en það hefur alveg gleymst í umræðunni. Hagnaður bankans af sölunni, rúmur milljarður, rennur sennilega beint í ríkissjóð í næstu arðgreiðslu. En það er ekki sama hver kaupir að mati sumra og málið hefur valdið Landsbankanum óþarfa armæðu. En svona gerist þegar stjórnmálamenn ætla að fara að skipta sér af viðskiptum,“ segir sá og telur endurspeglast í málinu öllu að ekki sé Landsbankanum til framdráttar að vera alfarið í eigu ríkisins.

2 - Stofnun sjónvarpsstöðvanna Miklagarðs og Bravó
Sjónvarpsstöðvar Konunglega kvikmyndafélagsins, sem Sigmar Vilhjálmsson fór fyrir, hófu göngu sína um miðjan mars á þessu ár. Þær voru ekki langlífar því öllum starfsmönnum var sagt upp í apríllok. Um miðjan maí var tilkynnt um yfirtöku 365 á stöðvunum og að Mikligarður yrði lagður niður.
„Ekki góð hugmynd fyrir framleiðslufyrirtæki að fara í samkeppni við viðskiptavini sína og þá á alveg eftir að ræða óraunhæfar tekju- og kostnaðaráætlanir,“ segir í umsögn eins dómnefndarmanns.
„Algjört vanmat frá upphafi og vart hægt að klúðra hlutum með meiri bravúr,“ segir annar. „Fá þó prik fyrir að viðurkenna ruglið hratt og bakka út.“

Allmargir dómnefndarmenn nefndu skuldaleiðréttingu ríkisstjórnarflokkanna sem mesta afleik ársins á viðskiptasviðinu.
„Ef það átti að eyða 80 milljörðum þá hefði verið ágætt að setja þá peninga til dæmis í nýjan Landspítala sem hefði nýst landsmönnum öllum,“ sagði einn.
Annar benti á að með aðgerðinni hafi miklar fjárhæðir runnið að stórum hluta til fólks sem ekki hafi þurft á þeim að halda. „Fjármunina hefði betur mátt nýta til að lækka skuldir ríkissjóðs (og þar með álögur á einstaklinga og fyrirtæki) og til að renna styrkari stoðum undir heilbrigðiskerfið og menntakerfið,“ sagði sá.
Annað sem var nefnt:
Viðskiptin með Fjarðarlax og Skeljung
„Fólk á einfaldlega ekki að færa sig hinum megin borðsins í miðjum viðskiptum.“
Kaup Björns Leifssonar á hlut í DV
„Viðskipti Björns Leifssonar hafa verið umdeild og áskriftum að blaðinu fækkaði umtalsvert í kjölfarið.“
Ákvörðun þeirra sem ekki stóðu við tilboð í hlutabréfaútboði HB Granda
„Bréfin hafa síðan hækkað um ríflega þriðjung (eru nú 37,5 en útboðsverðið var 27,7).“
Uppbygging ríkisins á innviðum í Helguvík
„Hvenær ætla stjórnvöld að hætta að henda peningum í óskuldbindandi og oft raunar mjög ólíkleg plön erlendra fyrirtækja og læra að treysta markaðnum fyrir því að leysa þessi mál?“
Baðhúsið/Reginn
„Of mikið klúður frá A til Ö … sjálfsagt af beggja hálfu. Sýnir hversu lítið rými fyrirtæki hafa í viðskiptum við stóru eignarhaldsfélögin. Báðir hafa misreiknað sig illa í þessu öllu saman.“
Viðskipti með innflutta matvöru sem ekki urðu vegna verndarstefnu
„Öll viðskiptin með innflutta matvöru sem neytendur misstu af vegna ofurtolla og innflutningshamla. Líka viðskiptin sem íslensk fyrirtæki misstu af í útlöndum af svipuðum ástæðum; MS hefði til dæmis getað selt ennþá meira skyr á Evrópumarkaði ef ekki væri fyrir háa tolla.“
Flutningur Fiskistofu til Akureyrar
„Skólabókardæmi um hvernig á alls ekki að gera hlutina — gamaldags pólitík í sinni verstu mynd. Framsókn sjálfri sér lík, en dapurlegt ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að kóa með.“