Ólga og óeirðir í Ferguson 15. ágúst 2014 09:00 Óeirðir í Ferguson. Mynd/AP
Óeirðir brutust út í bænum Ferguson í Missouri í fyrrakvöld. Lögreglan notaði táragas og reyksprengjur til að dreifa mannfjöldanum, sem hafði kastað eldsprengjum í áttina að lögreglunni. Dagleg mótmæli hafa verið í Ferguson frá því á laugardag, en þá lét 18 ára piltur lífið eftir að lögregluþjónn skaut á hann. Pilturinn var svartur á hörund og hét Michael Brown, en lögregluþjónninn er hvítur og hefur nafn hans ekki fengist uppgefið hjá stjórnvöldum. Frásögn lögreglunnar af því sem gerðist ber ekki saman við frásagnir vitna. Lögreglan segir að lögregluþjónn hafi vikið sér að Brown og öðrum manni, en þeir hafi þá ráðist á lögregluþjóninn og reynt að taka af honum byssuna. Dorian Johnson, sem segist hafa verið með Brown þegar lögreglan hafði afskipti af þeim, segir allt aðra sögu. Lögregluþjónninn hafi reynt að opna bíldyrnar en bílhurðin hafi verið svo nálægt þeim að hún hafi skellst til baka. Þetta hafi farið í taugarnar á lögreglumanninum og hann hafi gripið til byssu sinnar þegar Brown reyndi að hlaupa burt. Anonymous, samtök tölvuþrjóta, nafngreindu í gær lögregluþjón og sögðu hann hafa skotið piltinn, en lögreglan í Ferguson fullyrðir að þar sé rangur maður nafngreindur.
Mest lesið Appelsínugular viðvaranir og heiðar lokaðar Veður Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Innlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? Innlent Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Innlent Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Innlent Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Innlent Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Innlent Clinton lagður inn á sjúkrahús Erlent Fleiri fréttir Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Segir Grænland ekki falt Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Sjá meira