Tónlist

Briem spilar með Bonham

Gunnar Leó Pálsson skrifar
F.v. Kristján Grétarsson, Eiríkur Hauksson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Stefán Jakobsson og Dagur Sigurðsson eru klárir í slaginn
F.v. Kristján Grétarsson, Eiríkur Hauksson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Stefán Jakobsson og Dagur Sigurðsson eru klárir í slaginn fréttablaðið/stefán
„Bonham verður með okkur á sviðinu, nema honum verður varpað á tjald og við ætlum að djamma saman í laginu Moby Dick,“ segir Gunnlaugur Briem trommuleikari sem kemur fram ásamt einvalaliði á heiðurstónleikum Led Zeppelin í Eldborgarsalnum í Hörpu í kvöld.

Hljómsveitin sem ætlar að leika lög Led Zeppelin er skipuð, ásamt Gulla Briem, þeim Þóri Úlfarssyni, Kristjáni Grétarssyni, Eyþóri Úlfari Þórissyni, Inga Birni Ingasyni en söngvarar kvöldsins eru þeir Eiríkur Hauksson, Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Stefán Jakobsson og Dagur Sigurðsson. Sérstakir gestir eru þeir Birgir Haraldsson söngvari og Sigurgeir Sigmundsson, gítarleikari úr Gildrunni.

Gulli Briem djammar með John Bonham á tónleikunum.fréttablaðið/Stefán
„Þetta er rokk og ról með klassísku ívafi því með okkur verður strengjasveit,“ bætir Gulli við.

Led Zeppelin er af mörgum talin ein áhrifamesta rokkhljómsveit allra tíma. Hún er meðal mest seldu listamanna heimsins og hefur selt um 300 milljón plötur á heimsvísu. „Þetta er krefjandi tónlist og við höfum æft stíft að undanförnu,“ segir Gulli spurður út í undirbúninginn.

500 krónur af hverjum seldum miða renna til Mottumars, söfnunarátaks Krabbameinsfélagsins.

Á þessum tónleikum verða spiluð bestu lög þessarar frábæru hljómsveitar. Uppselt er á fyrri tónleikana klukkan 20.00 en þó eru enn til örfáir miðar á aukatónleikana sem hefjast klukkan 23.00. Miðasala fer fram á miði.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.